ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Úr leik ÍBV og KA á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV tók á móti Þór í 21. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag þar sem gestirnir fóru með 0-1 sigur af hólmi.

Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill framan af og lítið um alvöru færi. Eyjamenn fengu gullið tækifæri eftir hálftíma leik til að komast yfir þegar Sigurður Arnar Magnússon var tekinn niður inn í teig Þórsara og Eyjamenn fengu vítaspyrnu. Vicente Valor fór á vítapunktinn en skot hans fór rétt framhjá markinu. 

Þórsarar náðu forystunni á lokamínútu fyrri hálfleiks. Þeir fengu þá aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi ÍBV sem Vilhelm Ottó Biering Ottósson tók. Hann sendi boltann inn á teig ÍBV og Sigfús Fannar Gunnarsson stýrði boltanum í netið. Staðan 0-1 í hálfleik. 

Eyjamenn fengu nokkur ágætis færi í síðari hálfleik til að jafna leikinn en markvörður Þórs, Aron Birkir Stefánsson, átti góðan leik í markinu. Þá átti Aron Lucas Vokes skot í utanverða stöngina þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Niðurstaða leiksins því 0-1 útisigur Þórsara.

ÍBV er komið í fallsæti í deildinni og er án sigurs í síðustu átta leikjum. Þeir sitja í 11. sæti með 17 stig. Þórsarar eru í sætinu fyrir ofan með 18 stig.

ÍBV 0 – 1 Þór

0-0 Vicente Rafael Valor Martínez (’30 , misnotað víti)

0-1 Sigfús Fannar Gunnarsson (’45 )

Rautt spjald: Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Þór (’83)

Nýjustu fréttir

Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Fleiri utankjörfundaratkvæði en í vor
Kjördagur í Vestmannaeyjum – 241 höfðu kosið klukkan 11
Styrkleikarnir í Herjólfsdal í dag
Á bak við tjöldin hjá Laxey í Viðlagafjöru
Djúpur tunglmyrkvi yfir Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.