Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Mynd/ÍBV

Handknattleiksdeild ÍBV hefur gengið frá tveggja ára samningi við Ólöfu Maríu Stefánsdóttur. Hún er því komin aftur heim í ÍBV. Félagið greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í kvöld.

,,Stuðningsmenn ÍBV þekkja Ólöfu Maríu vel, en hún lék með liðinu frá haustinu 2020 til vorsins 2023. Síðasta tímabilið með ÍBV varð hún bæði bikar- og deildarmeistari. Ólöf María skipti þá yfir í Gróttu en er nú komin heim aftur”, segir í tilkynningu ÍBV. 

Handknattleiksdeild ÍBV býður Ólöfu Maríu velkomna aftur og hlakkar til samstarfsins.

Nýjustu fréttir

Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.