Olís deild kvenna hófst í dag með leik ÍBV og KA/Þór í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja þar sem heimakonur í ÍBV höfðu betur, 32–28.
ÍBV hafði yfirhöndina frá upphafi leiks og náði fljótt góðu forskoti. Eftir stundarfjórðung voru Eyjakonur komnar sjö mörkum yfir, 12–5. KA/Þór náði þó að minnka muninn en ÍBV leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 19–15.
Eyjakonur héldu áfram að hafa frumkvæðið í síðari hálfleik og voru með fjögurra til sex marka forskot allan leikinn. KA/Þór náði aldrei að ógna forskoti ÍBV að ráði og heimakonur héldu forystunni til leiksloka. Lokatölur 32–28.
Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, og Joan Rúnadóttir Johannesen, leikmaður KA/Þór, voru markahæstar í leiknum með átta mörk hvor.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 8 mörk, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 7, Amelía Dís Einarsdóttir 4, Ásta Björt Júlíusdóttir 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Andrea Jacobsen 2, Klara Káradóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 1.
Úrslit dagsins í Olís deild kvenna: