Handknattleiksdeild ÍBV tilkynnti nú rétt í þessu á samfélagsmiðlum sínum að Kristrún Ósk Hlynsdóttir hafi skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.
„Kristrún sneri aftur á völlinn í fyrra eftir töluverða fjarveru frá handbolta árin á undan. Hún kom virkilega vel inn og skoraði meðal annars afar mikilvæg mörk í einvíginu gegn Haukum í undanúrslitum,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV.
Handknattleiksdeild ÍBV kveðst afar ánægð með að hafa tryggt sér krafta Kristrúnar áfram og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við hana.