Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
Frá hlaupinu í gær. Mynd/Þorsteinn Ólafsson

Vestmannaeyjahlaupið fór fram í sextánda sinn í gær við góðar aðstæður og blíðskaparveður. Alls tóku 116 hlauparar þátt í hlaupinu með góðum árangri.

Stefán Kári Smárason hafði sigur í 10 km hlaupi karla og kom í mark á tímanum 36:50. Elís Rafn Björnsson varð annar, aðeins fjórum sekúndum á eftir Stefáni, á 36:54. Sindri Georgsson hafnaði í þriðja sæti á 37:24.

Í 10 km hlaupi kvenna var það Fríða Rún Þórðardóttir sem kom fyrst í mark á tímanum 41:49. Sandra Dís Pálsdóttir varð önnur á 45:45 og Fríða Kristín Jónsdóttir þriðja á 55:14.

Í 5 km hlaupi karla bar hinn þrettán ára gamli Nökkvi Dan Sindrason sigur úr býtum og kom í mark á glæsilegum tíma, 20:08. Daði Guðmundsson varð annar á 20:59 og Helgi Heiðar Stefánsson þriðji á 21:17.

Erla Rós Sigmarsdóttir sigraði í 5 km hlaupi kvenna á tímanum 22:06. Guðrún Bára Magnúsdóttir varð önnur á 22:42 og Katrín Hulda Tómasdóttir þriðja á 23:38.

Öll úrslit má sjá hér.

Hér að neðan eru nokkrar myndir frá hlaupinu sem Þorsteinn Ólafsson tók.

Nýjustu fréttir

Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.