Skráningarfrestur fyrirtækja á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands hefur verið framlengdur til og með 31. október næstkomandi. Sýningin verður haldin í Horseday-höllinni í Ölfusi 7. nóvember.
Uppspretta Suðurlands er vettvangur fyrir fyrirtæki, frumkvöðla og stofnanir á Suðurlandi til að kynna starfsemi sína, auka sýnileika og mynda ný tengsl. Sunnlenskt atvinnulíf einkennist af miklum krafti og fjölbreytileika og spannar allt frá blómlegri matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu til hátækni og grænnar orkuframleiðslu. Sýningunni er ætlað að brjóta niður múra milli ólíkra atvinnugreina og skapa vettvang fyrir samtal og samvinnu.
Að baki sýningunni standa Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Háskólafélag Suðurlands og Markaðsstofa Suðurlands. Samstarf þessara þriggja aðila undirstrikar sameiginlegan vilja til að efla nýsköpun og styrkja stoðir atvinnulífs um allt Suðurland.
SASS hvetur stjórnendur og eigendur sunnlenskra fyrirtækja til að nýta sér framlengdan skráningarfrest og tryggja sér pláss á sýningunni.
Skráning og nánari upplýsingar um dagskrá eru á uppspretta.sass.is.