Vestmannaey og Bergey lönduðu samtals um 69 tonnum í Neskaupstað sunnudaginn 18. október. Bæði skipin héldu frá Vestmannaeyjum á fimmtudag en þurftu að stytta veiðiferðir sínar vegna brælu úti fyrir Austurlandi. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Vestmannaey landaði um 31 tonni, þar af 26 tonnum af þorski og þremur tonnum af ýsu. Birgir Þór skipstjóri segir áhöfnina hafa byrjað að leita að fiski með suðurströndinni en endað við veiðar úti fyrir Austurlandi.
„Brælurnar koma nú nokkuð þétt og það er ljóst að veturinn er farinn að minna rækilega á sig,“ segir Birgir Þór í frétt Síldarvinnslunnar.
Bergey landaði 38 tonnum, þar af 32 tonnum af þorski og fjórum tonnum af ýsu. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að ágætlega hafi fiskast en veðrið hafi neytt þá til að hverfa frá veiðum.
„Túrinn varð stuttur vegna veðurs. Það fiskaðist ágætlega en við þurftum að hverfa frá,“ segir Jón. Í fréttinni kemur jafnframt fram að áætlað hafi verið að Bergey héldi aftur til veiða á þriðjudag og landaði síðar í vikunni fyrir austan.
Birtingur landaði einnig í Neskaupstað á sunnudaginn, 32 tonnum eftir tvo daga á veiðum. Samkvæmt frétt Síldarvinnslunnar er veðurútlitið næstu daga óhagstætt og því óvíst hversu samfelldar veiðarnar verða.