Bleikur blær í Skipalyftunni
Bleikt var þemað bæði í klæðnaði og kræsingum þegar starfsfólk Skipalyftunnar gerði sér glaðan dag í morgunkaffinu á Bleika deginum. Eyjafréttir/Óskar Pétur.

Starfsfólk Skipalyftunnar tók þátt í Bleika deginum í morgun, miðvikudaginn 21. október. Boðið var upp á kaffi og meðlæti eins og venjan er á þessum degi og auðvitað voru flestar terturnar bleikar. Óskar Pétur var á staðnum með myndavélina og tók meðfylgjandi myndir af morgunstundinni.

Krabbameinsfélag Íslands hvetur landsmenn til að bera Bleiku slaufuna og klæðast bleiku á Bleika deginum til að sýna konum sem greinst hafa með krabbamein stuðning og samstöðu.

Í Skipalyftunni gafst starfsfólki tækifæri til að setjast niður saman, spjalla yfir kaffibolla og gæða sér á bleikum kræsingum um leið og tekið var undir þann mikilvæga boðskap.

Starfsfólk Skipalyftunnar stillti sér upp í bleikum bolum í morgunsólinni og sýndi samstöðu á Bleika deginum.

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.