SFS vilja lækka kolefnisgjald sem hefur meira en tvöfaldast frá 2024
SFS vilja að kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa verði afnumið eða lækkað verulega.

Kolefnisgjald á gas- og dísilolíu hefur hækkað úr 13,45 krónum á lítra árið 2024 í 28,30 krónur á þessu ári. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vilja að gjaldið á eldsneyti fiskiskipa verði afnumið eða lækkað verulega á meðan raunhæfir kostir til orkuskipta eru ekki fyrir hendi.

Í greiningu sem SFS birtu í morgun kemur fram að gjaldið hafi verið 2,90 krónur á lítra þegar það tók gildi í ársbyrjun 2010 og hafi því nær tífaldast að nafnvirði. Samkvæmt samtökunum liggur fyrir Alþingi frumvarp sem gerir ráð fyrir 5,2% hækkun til viðbótar.

Áætla 4,6 milljarða í gjald á þessu ári

Fiskiskip og fiskimjölsverksmiðjur greiddu samtals um 25 milljarða króna í kolefnisgjald á árunum 2010–2025, þar af rúmlega 23 milljarða vegna fiskiskipa, samkvæmt greiningunni. SFS áætla að greiðslur fiskiskipa og fiskimjölsverksmiðja nemi samanlagt um 4,6 milljörðum króna í ár, samanborið við tæplega 3,5 milljarða í fyrra.

Norðmenn bæta útgerðum stóran hluta gjaldsins

Samkvæmt samanburði SFS er sambærilegt kolefnisgjald á eldsneyti fiskiskipa ekki lagt á í Færeyjum, á Grænlandi eða í Bretlandi. Danir hafa frestað álagningu til ársins 2029 og gera ráð fyrir að endurgreiða helming gjaldsins fyrsta árið.

Í Noregi er gjaldið hærra á lítra en á Íslandi. Norsk stjórnvöld hafa frá árinu 2020 bætt útgerðum stóran hluta þess samkvæmt sérstöku bótakerfi. Norska Stórþingið hefur jafnframt óskað eftir tillögu ríkisstjórnarinnar um að gjaldið á fiskiskip verði afnumið frá 1. janúar 2027, að því er fram kemur í greiningunni.

SFS telja að munurinn á gjaldtöku milli landa geti ýtt undir að íslensk fiskiskip taki eldsneyti erlendis og að landanir og þjónustukaup geti fylgt í kjölfarið.

Olíunotkun farin að minnka áður en gjaldið tók gildi

Olíunotkun fiskiskipa og fiskimjölsverksmiðja dróst saman úr 287 þúsund tonnum árið 1995 í 182 þúsund tonn árið 2010. Samkvæmt SFS hefur notkunin lítið breyst frá 2020 þrátt fyrir hækkanir gjaldsins.

Samtökin telja að fyrirliggjandi gögn sýni ekki afgerandi áhrif gjaldsins á olíunotkun. Þau benda á að við mat á áhrifunum þurfi meðal annars að taka tillit til afla, fjarlægðar á miðin og endurnýjunar skipa. Kostnaður við nýja orkugjafa, takmarkað framboð þeirra og skortur á innviðum hamli enn orkuskiptum í fiskiskipaflotanum, að mati SFS.

Raforkuverð skiptir máli fyrir fiskimjölsverksmiðjur

SFS segja að raforkuskerðingar og hár kostnaður við flutning og dreifingu raforku geti orðið til þess að fiskimjölsverksmiðjur reiði sig áfram á olíu þótt þær hafi fjárfest í rafvæðingu. Í umfjöllun nýverið um fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar sagði Unnar Hólm Ólafsson verksmiðjustjóri að olía væri umtalsvert ódýrari kostur fyrir verksmiðjuna en rafmagn og að hún notaði 18 til 25 þúsund lítra á sólarhring þegar vinnsla stæði yfir.

Samtökin vilja að kolefnisgjald verði endurgreitt vegna losunar sem fiskimjölsverksmiðjur hafa þegar gert upp í viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS). Þá leggja þau til að tekjur af gjaldinu verði nýttar til orkuskipta, meðal annars til að styrkja raforkuinnviði, bæta landtengingar og styðja við fjárfestingar í sparneytnari skipum og búnaði.

Sjá greiningu SFS í heild

Nýjustu fréttir

SFS vilja lækka kolefnisgjald sem hefur meira en tvöfaldast frá 2024
Námið mætir barninu þar sem það er statt 
Arnór skoraði níu mörk í tapi Karlskrona
Nóvemberblað Eyjafrétta komið út
Eyjamenn geta farið upp fyrir Aftureldingu með sigri
Lions býður upp á fría blóðsykursmælingu
ÍBV tekur við dósamóttökunni í febrúar
Skóladagurinn góð upplifun 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.