Sigurganga Erlings heldur áfram í þýsku B-deildinni
Mynd/GWD Minden

Erlingur Richardsson og lærisveinar hans hjá GWD Minden unnu sinn sjötta deildarleik í röð í gær þegar liðið lagði TV Emsdetten að velli, 29–35, í þýsku B-deildinni í handbolta.

Staðan var jöfn í hálfleik, 16–16, og var leikurinn jafn framan af síðari hálfleik. Minden náði hins vegar undirtökunum þegar leið á leikinn og tryggði sér að lokum sex marka sigur. Florian Kranzmann og Morten Hempel voru markahæstir hjá Minden með sjö mörk hvor.

Erlingur tók við þjálfun liðsins í lok september og hefur gengið vel síðan. Minden hefur unnið alla sex deildarleiki sína undir hans stjórn.

Eftir 11 umferðir er Minden í 6. sæti þýsku B-deildarinnar með 15 stig.

Næsti leikur liðsins er á föstudaginn, 20. nóvember kl. 20:00, þegar HSG Nordhorn-Lingen kemur í heimsókn í Kampa-Halle. Þar mætast feðgarnir Erlingur og Elmar en sá síðarnefndi leikur með Nordhorn-Lingen.

Nýjustu fréttir

Sigurganga Erlings heldur áfram í þýsku B-deildinni
Fæst nóg stórgrýti í brimvarnargarðinn við Eiðið?
Rúmlega 40 milljóna salernisframkvæmd hélt áfram án byggingarleyfis
Svekkjandi tap hjá Heimi og lærisveinum gegn Austurríki
Handverk og mannlíf í Höllinni
ÍBV nældi í stig gegn toppliði Hauka
Tilnefningin mikilvæg viðurkenning og hvatning
Miðflokkurinn lagði til tveggja vikna sumarlokun leikskólanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.