Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson var markahæstur þegar HSG Nordhorn-Lingen vann öruggan tíu marka sigur á TV Großwallstadt, 23–33, í þýsku B-deildinni í handbolta í dag. Leikurinn var í 11. umferð deildarinnar og fór fram í Untermainhalle.
Elmar skoraði níu mörk úr 14 skotum fyrir Nordhorn-Lingen. Þá gaf hann tvær stoðsendingar og stal boltanum fimm sinnum.
Elmar hefur verið öflugur í uppspili liðsins og er sem stendur stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar með 52 stoðsendingar.
Með sigrinum fór Nordhorn-Lingen upp í 7. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 11 umferðir.