Verðskrá HS Veitna fyrir fjarvarma í Vestmannaeyjum hækkaði um 4,81% þann 1. nóvember. Hitaveita á Suðurnesjum hækkaði jafn mikið sama dag. Þetta kemur fram í skriflegu svari HS Veitna við fyrirspurn Eyjafrétta um gjaldskrár félagsins á næsta ári.
Eyjafréttir spurðu hvort HS Veitur hygðust miða við að hækkanir yrðu ekki meiri en 2,5% árið 2027 og hvort sama viðmið myndi gilda á öllu starfssvæði félagsins.
„Ákvarðanir um breytingar á verðskrám HS Veitna árið 2027 liggja ekki fyrir,“ segir í svari sem Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskipta- og markaðsstjóri, sendi fyrir hönd félagsins.
HS Veitur rekja nóvemberhækkunina til kostnaðarhækkana og umfangsmikilla fjárfestinga í endurnýjun og uppbyggingu hitaveitukerfa á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum. Að sögn félagsins nema fjárfestingar þess á árinu tvöfaldri fjárhæð miðað við undanfarin ár. Þeim sé meðal annars ætlað að tryggja afhendingaröryggi og mæta framtíðarþörfum íbúa og atvinnulífs.
Reykjanesbær stefnir að því að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa bæjarsjóðs við 2,5% árið 2027. Í svari HS Veitna er bent á að félagið sé sjálfstætt og að stjórn þess taki ákvarðanir „út frá stöðu rekstursins og fjárfestinga fyrirtækisins hverju sinni.“
HS Veitur segjast taka undir mikilvægi þess að stuðla að stöðugleika í verðlagi og benda jafnframt á þörfina fyrir viðhald og uppbyggingu veitukerfa. Félagið tekur ekki afstöðu í svarinu til þess hvort það muni miða við 2,5% eða hvort sama viðmið verði notað á öllum þjónustusvæðum.