Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar síðdegis í dag, samkvæmt nýrri tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Brottför frá Vestmannaeyjum er áætluð kl. 16:00 og frá Landeyjahöfn kl. 20:15. Sú ferð kemur í stað áður auglýstrar brottfarar frá Þorlákshöfn kl. 19:45.
Verði breytingar á þessari áætlun verða þær tilkynntar um leið og þær liggja fyrir.
Upplýsingar um siglingar í fyrramálið verða gefnar út kl. 06:00 í fyrramálið.
Farþegar eru jafnframt minntir á að á þessum árstíma geti þurft að færa siglingar milli hafna. Því sé ekki æskilegt að skilja ökutæki eftir í annarri hvorri höfninni.