Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur falið formanni ráðsins og hafnarstjóra að ljúka viðræðum við Minjastofnun Íslands um framtíð Blátinds VE. Ráðið leggur áherslu á að málið verði leitt til lykta án frekari tafa.
Á fundi ráðsins kom fram að sá frestur sem Minjastofnun hafði gefið sér til að kanna áhuga á yfirtöku og uppgerð bátsins væri liðinn. Tveir aðilar hafa sýnt áhuga á að taka Blátind að sér og gera hann upp. Ekki kemur fram í fundargerðinni hverjir þeir eru.
Málið var áður rætt á 343. fundi ráðsins, þegar Minjastofnun lagði til að leitað yrði að áhugasömum aðilum.