Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Mynd/HSÍ

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson stýrði íslenska kvennalandsliðinu í handbolta í dag þegar liðið mætti Svíþjóð í síðari vináttulandsleik liðanna fyrir Evrópumótið sem hefst 3. desember.

Leikurinn fór fram í Halmstad í Svíþjóð þar sem heimakonur höfðu betur og unnu öruggan þrettán marka sigur, 34–21. Staðan í hálfleik var 19–10, Svíum í vil.

Eyjakonurnar Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV, Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður Blomberg-Lippe, og Elísa Elíasdóttir, leikmaður Vals, léku allar með Íslandi í leikjunum. Sandra var markahæst í íslenska liðinu í dag með sex mörk. Díana Dögg skoraði þrjú mörk.

Fyrri leikur liðanna fór fram í Malmö á fimmtudaginn þar sem Ísland vann góðan 29-28 sigur, Sandra skoraði þar sex mörk og Elísa eitt.

Evrópumótið fer fram dagana 3.–20. desember í fimm löndum. Ísland hefur leik á fimmtudaginn þegar liðið mætir Slóveníu klukkan 16:30. Allir leikir Íslands í riðlakeppninni fara fram í borginni Oradea í Rúmeníu.

Nýjustu fréttir

Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Ný vísindagrein um Kveikjum neistann
Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar
Mikill áhugi á The Puffin Run – Um 1.300 keppendur þegar skráðir
Sala á jólasælgæti Kiwanis hefst um helgina
25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.