Rekja má 43 skipsströnd við landið á síðustu 20 árum til þess að stjórnandi sofnaði. Í einu tilviki hafði stjórnandi vakað í 40 klukkutíma fyrir strandið.
Rannsóknastjóri siglingasviðs RNSA segir þennan fjölda uggvænlegan og það sé mikil mildi að ekki hafi orðið banaslys í þessum skipsströndum. Hann segir það aldrei nógsamlega brýnt fyrir skipstjórnendum að þeir fái nauðsynlegan hvíldartíma.
Í umfjöllun um mál þetta í sérblaði Morgunblaðsins um sjávarútvegsmál í dag segir Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður fagráðs um siglingamál, að fagráðið muni efna til ráðstefnu 19. mars þar sem fjallað verður sérstaklega um þetta vandamál.
„Það sem slær mig svolítið illa er að í júlí síðastliðnum urðu sex svona strönd við góðar aðstæður. Við höfum verið ótrúlega heppin að það hafi ekki orðið nein banaslys, eftir því sem ég best veit,“ sagði Ásta. Hún bendir á að tjónið sé samt mikið. Bátarnir jafnvel ónýtir, fólk missi vinnuna og svona óhöpp hafi keðjuverkandi áhrif á þeim stöðum þar sem bátarnir voru gerðir út. Andleg líðan þeirra sem í þessu lenda bíði þess jafnvel aldrei bætur.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.