Í dag kl. 14.00 verður konudagsmessa í Landakirkju. Þá varð Kvenfélagasamband Íslands 90 ára núna í febrúar og því eru kvenfélög hér í Eyjum sérstaklega velkomin. Karlakór Vestmannaeyja sér um sálmasöng og tónlistarflutning og því fá konur í kirkjukórnum frí líkt og venjulega á konudaginn. Sr. Viðar þjónar fyrir altari og prédikar.
Eins og alltaf eru allir velkomnir í Landakirkju en konur þó sérstaklega í tilefni dagsins.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst