Útskrift GRV myndir og viðurkenningar

Grunnskólinn í Vestmannaeyjum útskrifaði nemendur úr 10. Bekk í gærkvöldi. Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri fór yfir veturinn í ræðu sinni og þær sérstöku aðstæður sem krakkarnir upplifðu.

„Það má segja að síðasta önnin ykkar í skólanum hafi einkennst af skrýtum tímum, heimsfaraldri sem setti stórt strik í skólagönguna. Þið þurftuð að aðlaga ykkur að fjarkennslu og fjarnámi, þið misstuð af viðburðum sem einkenna síðasta skólaárið, eins og þemadögum og starfskynningu, skólaferðalagið var með öðrum hætti, en heppnaðist vel. Sem betur fer var hægt að halda árshátíð í síðustu viku og þar sýnduð þið að ef þið takið ykkur eitthvað fyrir hendur þá gerið þið það frábærlega. Þið höfðuð ekki langan tíma til að undirbúa árshátíð en ykkur tókst að gera hana með glæsibrag hentuð upp, krýningum, 4 stuttmyndum, 2 skólahljómsveitir spiluðu, veislustjórarnir sáu um hátíðina eins og þeir hefðu aldrei gert neitt annað og skemmtuð ykkur og öðrum með glæsibrag. Þið tókust líka á við Covid tímann með ótrúlegri jákvæðni og dugnaði, þið lögðuð hart að ykkur við að halda ykkar striki í náminu og ég held að þið hafið komið ykkur sjálfum á óvart í leiðinni. Ykkur og foreldrum ykkar ber að hrósa fyrir þennan tíma.“

Elísa Elíasdóttir og Daníel Franz Davíðsson tóku tvö falleg lög fyrir gesti. Thelma Sól Óðinsdóttir og Dagur Einarsson fluttu ávarp útskriftarnema með glæsibrag. María Fönn Frostadóttir 9. DGÞ lauk grunnskóla á 9 árum, með framúrskarandi árangur á samræmdu prófum en veitt var sérstök viðurkenning fyrir það.

Veittar voru viðurkenningar góðan árangur í GRV.

Viðurkenningar fyrir góða ástundun og skólasókn skólaárið 2019-2020
Andri Snær Sigmarsson
Bogi Matt Harðarson
Einar Þór Jónsson
Eva Sigurðardóttir
Ingunn Anna Jónsdóttir
Símon Þór Sigurðsson

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í námi.
Íslenska –  Rótary gefur verðlaunin
Þóra Björg Stefánsdóttir

Stærðfræði –  Íslandsbanki gefur peningaverðlaun.
Þóra Björg Stefánsdóttir

Enska –  Rótarý gefur verðlaunin.
Eva Sigurðardóttir  (fékk A á samræmdu í 9. bekk og í 9. og 10. bekk)

Danska –  Danska sendiráðið gefur verðlaun.
Andrea Dögg Arnsteinsdóttir
Þóra Björg Stefánsdóttir

Samfélagsfræði –  Rótarý gefur verðlaunin
Eva Sigurðardóttir

Náttúrufræði –  Rótarý gefur verðlaunin.
Breki Einarsson

List- og verkgreinar –  GRV gefur þessi verðlaun.
Bogi Matt Harðarsson – Hönnun og smíði
Unnur Birna Hallgrímsdóttir- myndmennt  

Framfaraverðlaun:   Karen gefur verðlaun í minningu Sigurlásar Þorleifssonar
Aron Steinar Thorarensen
Arnþór Ingi Pálsson
Dagur Einarsson

“Lokaverkefnin í ár voru fjölbreytt og skemmtileg. Það er gaman að fylgjast með nemendum í þessari vinnu, flest nutu sín vel og eru að vinna verkefni á sínu áhugasviði. Það er gaman að ljúka skólagöngunni á þennan hátt, nemendur fara stoltir og brosandi út í sumarið eftir þessa vinnu,” sagði Anna Rós.

Besta rannsóknin –  Munurinn á sjálfsímynd stráka og stelpna – Amelía Dís Einarsdóttir og Elísa Elíasdóttir

Besta kynningin – Hvort kynið fremur oftar sjálfsvíg á Íslandi og af hverju?  – Andrea Dögg Arnsteinsdóttir, Sigurbjörg Ósk Sigurðardóttir og Thelma Sól Óðinsdóttir

Flottasti básinn -Hvað mótaði golf eins og það er í dag?- Adam Smári Sigfússon, Daníel Franz Davíðsson og Karl Jóhann Örlygsson

Frumlegasta verkefnið – Hvað gerir fólk hamingjusamt? – Guðbjörg Sól Sindradóttir, Tinna Mjöll Guðmundsdóttir og Selma Rún Scheving Jónsdóttir

Flottasta heimasíðan – Hvernig hafa Brodwaysýningar þróast? – Eva Sigurðardóttir og Bertha Þorsteinsdóttir

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.