Rétt skal vera rétt

Fund þennan sátu auk undirritaðra, bæjarfulltrúar D- lista, formaður Skipulags- og bygginganefndar og framkvæmdastjóri Eðalhúsa ehf..

Ástæðan fyrir þessum fundi var sú að fulltrúar D�? lista vildu fá samþykki okkar fyrir því að deiliskipulag Eðalhúsa ehf. fengi afgreiðslu í Skipulags- og bygginganefnd á meðan samkeppni um miðbæjarskipulag væru enn í gangi. Við vorum algjörlega á móti því, þess vegna var haldinn fundur til að finna sáttaleið í málinu.

Gert var samkomulag um að deiliskipulag Eðalhúsa ehf. á Sigtúnsreitinum fengi afgreiðslu á aukafundi 1. desember í Skipulags- og bygginganefnd, �?ef fyrirtækið leggði fram samþykki allra eigenda lóða á reitnum�?. �?ar sem ekki lá fyrir samþykki allra eigenda lóðanna var samkomulag um afgreiðslu málsins fallið úr gildi og þess vegna átti ekki að boða til aukafundar um málið.

�?að að boða fundinn án þessara gagna var skírt brot á samkomulagi sem gert var milli B- og D- lista sem mynduðu meirihluta í bæjarstjórn Árborgar. Okkur var ljóst kvöldið fyrir fund eftir tölvubréf að formaður Skipulags- og bygginganefndar ætlaði sér að keyra málið í gegn þrátt fyrir að umbeðin gögn vantaði.

Við getum því staðfest orð bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna í fréttum á Stöð 2 í gærkvöldi að ekkert samkomulag hefði verið gert eru röng og staðfestum að samkomulag var gert um afgreiðslu málsins að uppfylltum ofangreindum skilyrðum.

Athyglisvert er að sjá og heyra að bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna er orðinn tvísaga í málinu.

�?að er ekki vinnubrögð í okkar anda að heimila verktökum að auglýsa tilllögur að nýju skipulagi án samþykkis allra lóðareigenda innan svæðisins.

Við höfum ávallt unnið af heilindum í störfum okkar með hag allra íbúa og sveitarfélagsins að leiðarljósi og munum halda því áfram, nú sem hingað til.

�?orvaldur Guðmundsson, bæjarfulltrúi.
Margrét Katrín Erlingsdóttir, bæjarfulltrúi.
Ármann Ingi Sigurðsson, varaformaður Skipulags- og bygginganefndar.

Nýjustu fréttir

Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.