Tæpur helmingur Eyjamanna vill Bakkafjöru

Vantar sérfræðiþjónustu til Eyja
Skiljanlega versla flestir Eyjamenn matvöru í heimahéraði, eða 92%, eitt prósent í héraðs- eða landshlutamiðstöðvum og 7% í Reykjavík. �?egar litið er á kaup á fatnaði segjast 56% Eyjamanna versla í Eyjum og 40% versla föt í Reykjavík. Aftur á móti skera Eyjamenn sig nokkuð úr þegar kemur að verslun á heimilistækjum en 82% Eyjamanna versla slík tæki heima fyrir og 18% í Reykjavík.
Til samanburðar versla 6% íbúa Árborgar heimilistæki í heimabyggð og aðeins 39% á Austurlandi. �?egar kemur að sérfræðilæknisþjónustu sækja 62% Eyjamanna þá þjónustu til Reykjavíkur og 36% fá sína þjónustu í Eyjum.
�?egar spurt var hvaða þjónustu vantaði í sveitarfélagið sögðu 31% lágvöruverslun, 19% sérfræðiþjónustu, 17% verslanir og 15% læknisþjónustu. �?egar litið er sérstaklega á Vestmannaeyjar sögðu 48% sérfræðiþjónustu, 16% læknisþjónustu og 4% lágvöruverslun. Var hlutfallið á þeim sem töldu vanta sérfræðiþjónustu langhæst í Vestmannaeyjum.

Tæpur helmingur vill höfn í Bakkafjöru
Sérstaklega voru Eyjamenn sem lentu í úrtakinu spurðir út í samgöngur. Kom þar fram að 86% Eyjamanna nota Herjólf alla jafna í sín ferðalög, 6% flug á Bakkaflugvöll, 6% sögðu það misjafnt og 2% flugu til Reykjavíkur.
�?ess má geta að könnunin var gerð í mars á þessu ári. Eins var spurt hvað stendur í vegi fyrir því að fólk fljúgi. 74% sögðu það of dýrt, 16% nefndu bílleysi í Reykjavík, 5% að flug væri óáreiðanlegt og 2% flughræðslu. Eins hvað flugmiði mætti kosta til að fólk tæki flug fram yfir Herjólf og meðalverðið sem kom út úr þeirri spurningu var 3.300 krónur.
Að lokum var spurt hvaða ferðamáta til Eyja fólki lítist best á. Gefnir voru upp fjórir möguleikar, Bakkafjara, hraðskreiðari ferja til �?orlákshafnar, flug til Reykjavíkur og flug á Bakka. Ekki var gefinn möguleiki á jarðgöngum. 47% aðspurðra sögðu Bakkafjara, 29% hraðskreiðari ferju til �?orlákshafnar, 8% flug til Reykjavíkur og 1% flug á Bakka. 15% sögðu enginn af þessum kostum.

Nánar í Fréttum í dag.

Nýjustu fréttir

Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram
Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja
Jóna Sigríður gefur ekki kost á sér áfram
Páll gefur ekki kost á sér
Íris gefur ekki kost á sér áfram hjá Fyrir Heimaey
Sækist eftir 2. sæti
Þetta snýst um fólkið mitt og bæinn minn
Stormurinn varð að lagi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.