Hverjum ber að tryggja öryggi íbúa?
2. janúar, 2007

�?lfusá og Hvítá hættulegastar
Á Suðurlandi varð flóðahætta hvað mest enda �?lfusá, Hvítá og tilheyrandi vatnasvæði hættulegasta flóðasvæði landsins. Í �?lfusá var flóðið nú næstum jafnstórt og það var árið 1968 og 1948.

Við Íslendingar byggjum reynslu okkar á náttúruhamförum oftar en ekki á munnmælasögum og minningu eldra fólks. Nú á tímum, þegar stjórnvöld og ýmsum stofnunum er ætlað ákveðið hlutverk við að tryggja öryggi landsmanna, er eðlilegt að spyrja sig hverjum er ætlað að fylgjast með vatnavöxtum, skrá og koma upplýsingum á framfæri við almenning og yfirvöld í þessu landi.

�?g leyfi mér að fullyrða að í náttúruhamförunum í desember hafi ekki nokkur stofnun eða yfirvald haft þeim skyldum að gegna. Almannavörnum er ætlað að bregðast við hættu hverju sinni og tel ég Almannavarnanefndir Árnessýslu hafa staðið sig frábærlega í flóðunum nú. �?að var eina opinbera aðkoman sem almenningur sá. Sunnlenskir björgunarsveitarmenn stóðu sig líka vel að vanda.

Hver á að vakta og bregðast við?
Veðurstofan hefur skyldum að gegna varðandi áhættumat á snjó- og aurflóðum en vatnavextir vegna rigninga/snjóleysinga virðast ekki vera á þeirra borði. Vatnamælingar Orkustofnunar mæla vatnshæð á ýmsum stöðum en virðast ekki hafa upplýsingaskyldu vegna yfirvofandi hættu vegna vatnavaxta. Í grein Einars Sveinbjörnssonar í Morgunblaðinu þann 27. desember sl. fer hann yfir mikilvægi vöktunar og viðbragðsáætlana. Landsvirkjun vaktar, í eigin tilgangi, úrkomu á vatnasviði �?jórsár og Tungnár en allt aðra sögu er að segja af hættulegasta flóðasvæði landsins �? Hvítá og �?lfusá. �?ar er einungis einn mælir við Hvítá í Fremstaveri.

�?að er með öllu óskiljanlegt að á 21. öldinni skulum við ekki vera lengra komin í gagnavinnslu og ætla það enn og aftur að miðla þekkingu um náttúruhamfarir í formi minninga og munnmæla.

Hvernig má það vera, með allar þessar ríkisstofnanir, að engin skuli hafa það hlutverk að fylgjast með, meta áhættu og koma þeim upplýsingum til almennings áður en ,,skaðinn er skeður�?? Að ég tali nú ekki um samvinnu slíkra stofnana sín á milli. Stofnanir eins og Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun eiga að hafa þekkingu til að meta öryggi landssvæða og þar með skapa íbúum þessa lands traustari byggð til framtíðar. Vatnamælingar Orkustofnunar, Veðurstofan, ÍSOR ofl. búa jafnframt yfir þekkingu og fróðleik sem nýtist til almannavarna í þessu landi.

Flækjumst ekki í frumskóginum �? hrindum í framkvæmd
�?að er brýnt að úr þessu verði bætt hið fyrsta. Að mínu mati má ábyrgð og yfirsýn svo mikilvægra mála ekki lenda milli stafs og hurðar. Hið opinbera verður nú þegar að taka á þessu máli svo augljóst megi vera hvaða aðili skuli vakta, bregðast við og miðla upplýsingum vegna þvílíkra náttúruhamfara eins og urðu hér fyrir jól.

Markmiðið er skýrt. Að auka öryggi landsmanna og gefa fólki möguleika á að bjarga sjálfum sér, fjölskyldu sinni, búpeningi og eignum. �?að er hægt án mikils tilkostnaðar �? því þarf strax að hrinda í framkvæmd.

Höfundur gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.