Fara varlega og gæta sérstaklega vel að persónulegum smitvörnum
Bær Eldfell
Myndin er tekin á Eldfelli.
Vegna fjölgunar Covid-19 smita síðustu daga bæði á landsvísu og hér í Eyjum vill aðgerðastjórn í Vestmannaeyjum skora á íbúa að taka höndum saman um að fara varlega og gæta sérstaklega vel að persónulegum smitvörnum, halda tveggja metra fjarlægðarmörkin, nota andlitsgrímur og þvo og spritta hendur reglulega. Þá er afar mikilvægt að virða reglur um sóttkví og einangrun í einu og öllu til að koma megi í veg fyrir frekari útbreiðslu smita.
Allir sem finna fyrir minnstu flensueinkennum eru hvattir til að fara rakleitt í skimun og halda sig til hlés þar til niðurstaða úr skimun liggur fyrir. Á HSU í Vestmannaeyjum, Sólhlíð 10, eru tekin sýni alla virka daga kl. 13:00-13:15. Best er að skrá sig í sýnatöku gegnum vefsíðu Heilsuveru.is, en einnig má hafa samband við heilsugæslu (432 2500). Mæting í skimun er við inngang á 1. hæð, aðkoma frá Helgafellsbraut. ATH. Raðir geta myndast utan dyra á álagspunktum í sýnatöku og er fólk hvatt til að klæða sig eftir veðri.
Allir sem mæta í sýnatöku þurfa að nota andlitsgrímu.
Allar upplýsingar er hægt að nálgast inn á https://www.covid.is/

Nýjustu fréttir

Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.