Hlynur langhlaupari ársins í annað sinn
Vestmannaeyjahlaup
Hlynur Andrésson hljóp kílómetrana 10 í Vestmannaeyjahlaupinu 2020 á nýju brautarmeti 31 mín. og 41 sek. sem þýðir meðalhraða upp á ca. 20 km/klst.

Andrea Kolbeinsdóttir og Hlynur Andrésson eru langhlauparar ársins 2021 mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunin voru afhent í þrettánda skiptið í dag sunnudaginn, 13. febrúar. Í öðru sæti höfnuðu Þorbergur Ingi Jónsson og Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir. Í þriðja sæti lentu Arnar Pétursson og Íris Anna Skúladóttir.

Hlynur Andrésson hlýtur þennan titil í annað skiptið. Kosið var á milli sex hlaupara í karlaflokki. Niðurstöður kosningarinnar eru eftirfarandi:

Röð Nafn
1 Hlynur Andrésson
2 Þorbergur Ingi Jónsson
3 Arnar Pétursson
4 Þorsteinn Roy Jóhannsson
5 Þórólfur Ingi Þórsson
6 Baldvin Þór Magnússon

 

Hlaup.is ræddi við Hlyn sem er staddur á Ítalíu í gegnum Zoom. Hlynur Andrésson er fluttur til Ítalíu frá Hollandi og æfir það undir leiðsögn eins frægasta og besta langhlaupara Ítalu, Stefano Baldini, en hann vann Ólympíugull í maraþoni 2004. Hann er með góða æfingafélaga, en æfir sérstaklega með ítalska metahafanum í 10 km hlaupi. Hlynur stefnir á Ólympíulagmark fyrir næstu Ólympíuleika sem þýðir að líklega þarf hann að fara undir 2:10. Fyrsta tilraun að þessu lágmarki verður vorið 2023.

Núna er fókusinn á 10 km götuhlaup, en hann stefnir á EM lágmark í því, sem þýðir að hann þarf að ná 28:15 og þar með bæta sig um 20 sekúndur. EM er í lok ágúst og að því loknu er stefnan sett á HM í hálfu maraþoni. Hlynur sagði frá ýmsu öðru skemmtilegu.

Nýjustu fréttir

Prófkjör leið til að sameina flokkinn á ný
Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru
Gul viðvörun: Norðaustan hríð
ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.