Baráttumálin okkar fengið samhljóm í bæjarstjórn
Eyþór Harðarson

Við sjálfstæðisfólk í Vestmannaeyjum erum að horfa á eftir annasömu ári. Það sem stendur uppúr að lokum er að samstaðan er mikil. Auðvitað er það ákveðinn lífstíll að vilja búa á eyju á Íslandi sem sjálft er lítil eyja langt norður í Atlandshafi. En hér eigum við heima og njótum þess að  vera þar sem friður ríkir og umfram allt er atvinnulífið öflugt og menningarlífið blómstrar.

Fyrir kosningarnar í vor var takmarkið var að ná meirihluta eftir eitt tímabil í minnihluta. Því miður tókst ekki ætlunarverkið eftir kosningabaráttu þar sem frambjóðendur lögðu á sig mikla og metnaðarfulla vinnu. Niðurstaðan 44,1% atkvæða sem dugði ekki til að komast í hreinan meirihluta. Eftir samtöl við forystumenn E og H lista þá var ljóst að þau ætluðu að vinna áfram saman í meirihluta.

Samstarfið við meirihlutann hefur gengið með ágætum og nokkur af baráttumálum okkar hafa fengið samhljóm í bæjarstjórn, t.d. stækkun á Hamarsskóla, lækkun fasteignaskatta, kostnaðaraðhalds í fjárhagsáætlun og ekki síst undirbúning að hefja starfssemi á Sköpunarhúsi fyrir ungt fólk þar sem ný viðmið verða sett. En að sjálfsögðu veitum við aðhald í þeim málum sem við teljum stefna í ranga átt.

Það er ljóst að kröfur fólks aukast stöðugt um betri þjónustu á öllum sviðum. Við sem störfum í sveitarstjórn erum ekki eingöngu kosin til að skipta kökunni sem er til. Við þurfum líka að hafa sýn á það hvernig kakan getur stækkað og hver sé grunnurinn að því að kakan verði til. Forsenda góðrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga er öflugt atvinnulíf. Þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í fararbroddi í langan tíma. Þar erum við vel sett í Eyjum og atvinnulífið hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með meiri fjölbreytileika í störfum en áður.

Það er ákveðin áskorun að starfa í minnihluta sveitarstjórnar. En ábyrgð okkar er engu að síður mikil og hefur okkur tekist að mynda ágætis traust og vinnuanda á þessu tímabili í bæjarstjórn með meirihlutanum. Enda eru mörg helstu baráttumálin okkar við ríkið um fjármagn til að sinna innviðauppbyggingu, samgöngum og heilbrigðismálum með þeim hætti sem við teljum ásættanlegt. Þar erum við öll á sama báti í samfélaginu.

Í lok árs þakka ég öllum þeim sem studdu okkur til góðra verka í bæjarstjórn, og ætlum við að gera okkar besta til að gera Vestmannaeyjar að góðum búsetukosti til framtíðar.

Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Eyjasundinu flýtt vegna veðurs
Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
ÍBV vann Val í Goslokaleik
Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð
Goslok: dagskrá sunnudags
Goslokahátíð stendur undir nafni sem fjölskydluhátíð
Fjölbreytt mannlíf á öðrum degi Goslokahátíðar
Forsendur dómsins verða yfirfarnar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.