Sverrir Páll til ÍBV

Sverrir Páll Hjaltested hefur samið við ÍBV til þriggja ára en hann kemur frá Val. Sverrir er orkumikill framherji sem mun smellpassa í þá hugmyndafræði sem er í gangi hjá ÍBV og er mikil ánægja hjá bæði ráði og í þjáfarateymi með komu hans. Segir meðal annars í tilkynningu frá ÍBV.

Í fyrra lék Sverrir 14 leiki í Lengjudeildinni og skoraði í þeim 6 mörk. Hann var þá á láni hjá Kórdrengjum. Óhætt er að segja að hann sé bikarmaður, en í þeim 7 bikarleikjum sem hann hefur spilað hefur hann skorað 7 mörk.

Myndin af Sverri var tekin í Reykjaneshöllinni í gær þar sem hann kom í fyrsta sinn til móts við liðið.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.