Bráðabirgðatillögur kynntar í stefnumótun um sjávarútveg

Starfshópar í verkefninu Auðlindin okkar hafa skilað bráðabirgðatillögum til matvælaráðuneytisins. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, skipaði samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu og fjóra starfshópa þann 31. maí sl.

Markmiðið með verkefninu Auðlindin okkar hefur frá byrjun verið að auka sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið þar sem gætt er að umhverfissjónarmiðum, þar sem verðmætin eru hámörkuð og þar sem dreifing verðmætanna er með sem sanngjörnustum hætti. Að auka sátt um sjávarútveg á Íslandi.

Nú eru starfshópar Auðlindarinnar okkar hálfnaðir með sína vinnu og tímabært að birta bráðabirgðaniðurstöður þeirra. Hóparnir hafa fundað með fjölda fólks, sérfræðingum, hagaðilum og almenningi, aflað fjölþættra gagna og lagt fram tilgátur og rannsóknaspurningar.

Tillögurnar eru 60, sumar þarf að útfæra enn frekar en aðrar eru lagðar fram til að skapa umræðu og kalla fram viðbrögð í samfélaginu, á Alþingi, hjá hagsmunaaðilum og sem víðast. Sjávarútvegurinn kemur öllum við, enda undirstöðuatvinnugrein í íslensku efnahagslífi. Því er mikilvægt að umræðan verði opin og sjónarmiðin sem fjölbreyttust. Tillögurnar eru bráðabirgðatillögur starfshópanna Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri.

Margar tillagnanna eru skýrar og til þess fallnar að efla samstöðu og skerpa sýn á málaflokkinn meðan aðrar munu kalla á sterk og ólík viðbrögð. Framundan er mikilvægur ferill í því skyni að byggja enn betur undir lokatillögur hópanna sem verður skilað í maí á þessu ári. Áhersla er lögð á að tillögurnar eru í vinnslu og að ekki er um endanlega afurð að ræða

Tillögurnar taka á ólíkum þáttum greinarinnar; fiskveiðistjórnun, rannsóknum, vísindum, ráðstöfun aflamarks, menntun, umgengni, starfsskilyrðum og markaðssetningu.

Hingað til hefur verkefnið verið unnið samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir að lokaniðurstöður líti dagsins ljós í vor, lagafrumvörp verði tilbúin til kynningar í árslok og þau verði lögð fram fullbúin á vorþinginu 2024.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að ferlið sé opið og gagnsætt og að sem flestar raddir heyrist á öllum stigum.

„Það hefur verið mín staðfasta trú að nýrrar nálgunar væri þörf gagnvart þeim áskorunum og tækifærum sem sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir og þar með íslenskt samfélag. Mikill metnaður hefur verið lagður í að vinnan sé þverfagleg og allt ferlið eins opið og verða má“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Ég tel þetta verkefni í senn tímabært og mikilvægt.“.

Tillögurnar verða ræddar í samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu, í ríkisstjórn, á opnum fundum auk þess sem þær verða sendar fjölmiðlum og birtar á samráðsgátt stjórnvalda.

Bráðabirgðatillögur starfshópanna má nálgast hér.

Nýjustu fréttir

Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Samfélag fyrir fjölskyldur

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.