LV og LR slá saman í Kviku í dag

„Við viljum minna á tónleikana okkar í Menningarhúsinu Kviku (leikhúsinu) í dag kl 16:00. Frítt inn & allir velkomnir,“ segir Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi Lúðrasveitar Vestmannaeyja á Fésbókarsíðu sinni í dag.

Í annarri færslu segir Jarl: „Við í Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit Reykjavíkur ákváðum nú fyrr í vetur að það væri gaman að hittast og spila saman nokkur skemmtileg lög og skella í smá tónleika. Þess vegna langar okkur að bjóða öllum gestum og gangandi á tónleika núna næstkomandi laugardag 4. mars,“ sem er í dag. Það má því búast við miklu fjöri í Kviku í dag og enn skal áréttað að FRÍTT er inn á tónleikana.

 

Nýjustu fréttir

Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.