Hlauparinn Hlynur Andrésson setti fjögur Íslandsmet á síðasta ári. Núna hefur hann lokið námi í Bandaríkjunum og ætlar að einbeita sér enn meira af hlaupinu.
„Ég kláraði meistaranám í líffræði núna í byrjun ágúst og þurfti þá að ákveða hvort ég myndi fara beint í doktorsnám og gera hlaupin að áhugamáli, eða gefa bara allt í hlaupin og reyna að komast á atvinnumannsstigið. Síðasta sumar þurfti ég að fórna atlögu að lágmarki fyrir EM í Berlín til að klára námið í Bandaríkjunum og það þótti mér mjög leiðinlegt. Í haust fannst mér ég eiga skilið að taka mér frí frá námi og reyna að ná sem mestu út úr mér sem hlaupara. Ég hef verið í sambandi við Honore Hoedt, sem þjálfaði Anítu Hinriksdóttur í Hollandi, frá því við hittumst á EM í Belgrað 2017. Hann hafði mikinn áhuga á að þjálfa mig og hafði trú á því að ég hefði það sem þyrfti til að komast á hæsta stigið í íþróttinni,“ sagði Hlynur í samtali við Morgunblaðið.
Ísfélagið, Vinnslustöðin og fleiri veita styrki
„Auðvitað er svolítið erfitt fjárhagslega að elta svona draum, en ég hef verið fremur heppinn með styrki hingað til og vonast eftir að geta unnið aðeins samhliða æfingum. Ísfélagið, Vinnslustöðin, Eins og fætur toga og ÍR hafa stutt við bakið á mér og ég þakka fyrir það. Til þess að geta keppt við atvinnumenn í hæsta gæðaflokki er eiginlega ekki hægt að vinna fulla vinnu. Maður verður eiginilega að eyða öllum sínum tíma í æfingarnar og jafna sig þess á milli. Þessari ákvörðun hef ég staðið frammi fyrir eftir að ég lauk námi. Hvort ég vilji í raun fórna svo miklu fyrir íþróttirnar sem er ekki sjálfgefið. Ég vona að þetta verði þess virði,“ sagði Hlynur.