Vestmannaeyjar eru komin á heimskort matgæðinga og öllum er boðið að koma og taka þátt í sjávarréttahátíðinni MATEY sem haldin verður 8., 9. og 10. september 2022.

Fyrirtæki í sjávarútvegnum og tengdum greinum gefa gestum tækifæri að fá innsýn í starfsemina og kynnast hvernig bláa hagkerfið tengist saman þannig að til verður dýrindis matur á diskum gesta sjávarréttahátíðarinnar á hinum fjölskrúðugu fjölskyldureknu veitingastöðum Vestmannaeyja.

Gestakokkar verða á veitingastöðunum í Eyjum og koma til með að útbúa sérstaka matseðla fyrir hátíðina.

Ástríða fyrir mat úrstaðbundnu hráefni
Einn af gestakokkunum er Leif Sørensen þekktur sem kallaður er „Færeyski kokkurinn“. Með því að umbreyta staðbundnu hráefni í bragðgóða og ljúffenga rétti og stofnun hins magnaða KOKS í Þórshöfn hefur „Færeyski kokkurinn“ okkar komið Þórshöfn og Færeyjum á matreiðslukort heimsins. Hann hefur nú snúið sér að öðru en lærlingur hans, Poul Andrias Ziska tekið við, en Leif vinnur nú að ýmsum verkefnum tengdum færeyskum mat.

Leif Sørensen sameinar mikla þekkingu sína á alþjóðlegri matargerð og matarmenningu við ástríðu sína fyrir því að útbúa mat úr staðbundnu hráefni. Með því að nota færeyskt hráefni upprunnið á landi, sjó og í lofti umbreytir Leif máltíðinni í stórkostlega tilfinningalega og vitsmunalega upplifun. Hann byggir á víðtækri reynslu sinni og skilningi á Færeyjum, sem og alþjóðlegri matargerðarlist. Hann miðlar þeirri þekkingu til gesta sinna, kryddað með sögum um uppruna tiltekins réttar og hefðbundinna hráefna hans, sem hann notar í nýja og frumlega rétti. Með því skapar hann þannig sælkeramat og viðburðaríka kynningu á máltíðinni.

Þessi nýstárlega áhersla á besta færeyska hráefnið hefur sótt innblástur í hina nýju norrænu matargerð: „Maturinn sem við borðum ætti að endurspegla hreinleika, ferskleika og einfaldleika færeyskrar náttúru sem er fyrir utan gluggann okkar,“ segir Leif Sørensen – og færir þannig færeyska náttúru að matarborðinu.

 

Með því að umbreyta staðbundnu hráefni í bragðgóða og ljúffenga rétti og stofnun hins magnaða KOKS í Þórshöfn hefur „Færeyski kokkurinn“ okkar komið Þórshöfn og Færeyjum á matreiðslukort heimsins.