Ábending frá Herjólfi
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Herjólfur stefnir á að sigla til Þorlákshafnar mánudaginn 6. apríl. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl.10:15 (Áður ferð kl. 10:45). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Þar segir jafnframt að seinni ferðir 6. apríl falli niður vegna appelsínugulrar viðvörunar. Vegagerðin hefur einnig gefið út að vegir til/frá Þorlákshöfn koma til með að vera lokaðir hluta af degi. Þeir farþegar sem áttu bókað frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45 eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína.

„Einnig viljum við góðfúslega benda farþegum á að samkvæmt spá fyrri hluta þriðjudags eru aðstæðar til siglinga ekki hagstæðar, hvetjum við farþega sem ætla sér að ferðast þá að fylgjast með miðlum okkar ef gera þarf breytingu á áætlun,” segir í tilkynningu skipafélagsins.

Nýjustu fréttir

Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
ÍBV úr leik í Mjólkurbikarnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.