Aðeins einn fullorðinn komi með barn á frístund og sæki það

Á þriðjudaginn fer frístund af stað eftir sumarfrí og nú á nýjum stað, í Hamarskóla. Þá byrjum við að taka á móti þeim börnum sem eru á leiðinni í fyrsta bekk.

“Við lifum nú við breyttar aðstæður þar sem einstaklingar sem voru gestkomandi sl. helgi hafa greinst með staðfest smit af COVID-19. 48 einstaklingar sem búsettir eru í Vestmannaeyjum eru þegar komnir í sóttkví en enginn er í einangrun (upplýsingar af vef Vestmannaeyjabæjar) Við þurfum því að fara mjög gætilega á frístundinni, sérstaklega í ljósi þess að nú opnum við á nýjum stað og því nýjar aðstæður fyrir alla. Í ljósi þessara aðstæðna sem hér hefur verið farið yfir viljum við ítreka eftirfarandi þætti:

· Verum meðvituð um eigin smitvarnir, sprittum hendur við koma á frístund, það eru sprittbrúsar í anddyri.

· Berum virðingu fyrir 2m reglunni. Inngangur frístundar er mjög þröngur og ekki hægt að gæta 2 m reglunar þar inni. Því viljum við biðja að foreldra að hinkra fyrir utan ef ekki sé hægt að gæta reglunnar.

· Aðeins einn fullorðinn komi með barn á frístund og sæki það.

· Nýtt símanúmer frístundar er 488-2240. Þegar barn er sótt eru forráðamenn eru beðnir um að hringja á undan sér.

Ekki koma lengra en inn í anddyri og dvelja þar sem styðst.

· Við reynum að enda daginn úti ef veður leyfir.

· Verum vakandi fyrir flensueinkennum bæði hjá okkur og börnunum, ef foreldrar finna fyrir einkennum biðjum við þau að koma ekki inn á frístund

· Verum skilningsrík, tillitssöm, kurteis og styðjum hver annað

· Við munum gera okkar besta í því að sótthreins snertifleti og halda ykkur upplýstum,” segir í tilkynningu frá Frístund á vef Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.