Eitt staðfest smit í Vestmannaeyjum

Einstaklingur búsettur í Vestmannaeyjum hefur greinst með staðfest smit af COVID-19 og er nú kominn í einangrun. Viðkomandi var í sóttkví við greiningu. 75 aðilar eru nú í sóttkví í Vestmannaeyjum.

Mánudaginn 10. ágúst nk. mun Íslensk erfðagreining standa fyrir skimum til að kanna útbreiðslu veirunnar í Vestmannaeyjum. Þeir sem hafa fengið boð eru hvattir til að skrá sig og taka þátt í skimuninni. Þeir sem ekki skrá sig missa sitt pláss. Aðilar með flensueinkenni skulu ekki mæta í skimunina.

Sem fyrr ítrekar aðgerðastjórn mikilvægi þess að bæjarbúar gæti að eigin smitvörnum. Verum dugleg að þvo hendur, notum sprittið óspart og virðum tveggja metra regluna og 100 manna regluna. Aðilar með flensueinkenni eru einnig hvattir til að setja sig í samband við heilsugæsluna í síma 1700 og fá tíma í sýnatöku.

F.h. aðgerðastjórnar
Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjóri.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.