Verði samruni Ramma hf. og Ísfélags Vestmannaeyja hf. samþykktur verður hið nýja sameinaða félag með langmestu heimildirnar í loðnu, alls 20,64%, sem er umfram lögbundið 20% hámark. Miðað við 131.826 tonna úthlutun á yfirstandandi vertíð er um að ræða veiðiheimildir fyrir 843 tonn af loðnu.
Þetta má lesa úr nýjustu samantekt Fiskistofu um samanlagða aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila og lögaðila. Mbl.is fjallaði um málið í gær.
Þar má greina að nýtt félag verður fjórða stærsta samstæðan í íslenskum sjávarútvegi með 8,14% af úthlutuðum kvóta og vel innan lögbundinnar hámarkshlutdeildar sem er 12%. Félagið verður með fjórðu mestu heimildirnar í þorski, þriðju mestu í ýsu og í ufsa. Auk þess sem það mun hafa 5,74% hlut í gullkarfa, 5,03% í djúpkarfa og 7,37% í grálúðu.
Athygli vekur að sameinað félag verður með þriðju mestu heimildirnar í síld.
Sameiginlega fara félögin einnig með mestu heimildirnar í úthafsrækju og rækju við Snæfellsnes, 14% í báðum flokkum. Þar af koma mestu heimildirnar í gegnum Ramma sem hefur um langt skeið verið stærsti aðilinn í tegundinni hér á landi.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst