Afnám sóttkvíar, fjöldatakmörk í 200 manns, 1.000 manna viðburðir heimilaðir

Hátt í 10.000 manns losna undan sóttkví í dag þegar reglur um sóttkví falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur svo gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir, líkt og nánar er tíundað hér að neðan.

Í dag verður birt reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands. Þessar breytingar taka gildi um leið og reglugerðin birtist í Stjórnartíðindum í dag. Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa því ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar. 

Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.

Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um takmörkun á samkomum sem gildir til og með 25. febrúar. Jafnframt fellur brott sérstök reglugerð um takmörkun á skólastarfi.
Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:

  • Almennar fjöldatakmarkanir: Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
  • Verslanir: Fjöldatakmarkanir í verslunum falla brott.
  • Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.
  • Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
  • Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
  • Íþróttakeppnir og -æfingar: Keppnir og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
  • Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undanteknum til rýmkunar.
  • Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
  • Staðir með vínveitingaleyfi: Opnunartími lengdur um eina klukkustund, þ.e. heimilt að taka á móti gestum til miðnættis en allir þurfa að hafa yfirgefið staðinn kl. 01.00.

Fylgiskjöl:

Nýjustu fréttir

Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka
Spurt og svarað: Rannveig frá Sjálfstæðisflokknum
Fólkið okkar og framtíðin
ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.