Áform um 120 herbergja hótel í Hásteinsgryfju
Tölvugerð mynd af hugsanlegu útliti á hóteli í Hásteinsgryfjunni.

Bæjarráð Vestmannaeyja vill að skoðuð verði gerð viljayfirlýsingar vegna áforma um uppbyggingu 120 herbergja hótels í Hásteinsgryfju. Stjórnsýslu bæjarins hefur verið falið að vinna málið áfram. Þröstur B. Johnsen hefur óskað eftir að fá úthlutað landi í Hásteinsgryfju fyrir uppbyggingu 120 herbergja hótels. Umhverfis- og skipulagsráð vísaði erindinu til bæjarráðs þar sem lóðin sem um ræðir er ekki til úthlutunar. Á fundi bæjarráðs í liðinni viku kom fram að stjórnsýslan hefði farið yfir gögn um málið allt aftur til ársins 2011. Þá hefðu bæjarfulltrúar rætt við umsækjanda og aðra sem komið hafa að málinu í gegnum tíðina.

Viljayfirlýsing fyrsta skrefið

Bæjarstjóri og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fóru yfir málið. Að mati bæjarráðs væri gerð viljayfirlýsingar eðlilegt fyrsta skref, miðað við umfang verkefnisins og sambærileg uppbyggingaráform sem sveitarfélagið hefur áður haft til meðferðar. Bæjarráð leggur til að skoðað verði hvort gera megi viljayfirlýsingu vegna verkefnisins, að uppfylltum þeim skilyrðum sem sveitarfélagið setur þegar sótt er um umfangsmikla uppbyggingu á landi sem ekki er til almennrar úthlutunar. Stjórnsýslunni hefur verið falið að vinna málið áfram.

Nýjustu fréttir

Suðurland á mikið undir
Íslenskir diplómatar binda ekki Evrópudómstólinn
Miðasala hafin á Lundaballið
ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.