Allir samþykkir að ráða Drífu
Drifa_radhus (1000 x 667 px) la
Drífa Gunnarsdóttir. Samsett mynd.

Bæjarstjórn samþykkti í gær með níu samhljóða atkvæðum tillögu bæjarráðs um að ráða Drífu Gunnarsdóttur í starf framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar.

Í tilkynningu á vef bæjaryfirvalda segir að Drífa hafi lokið diplómaprófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Áður hafði hún lokið B.Ed. prófi í grunnskólafræðum, með íslensku sem sérsvið, frá Kennaraháskóla Íslands og M.Ed. meistaragráðu frá Háskóla Íslands.

Drífa hefur í störfum sínum borið ábyrgð á verkefnum á sviði fjármála og reksturs. Hún hefur heildstæða reynslu af fjármálum í gegnum rekstur fjölskyldufyrirtækis og sem fræðslufulltrúi Vestmannaeyjabæjar.

Drífa hefur reynslu af áætlanagerð og eftirfylgni áætlana bæði fjárhagsáætlana og starfsáætlana. Hún hefur undanfarið komið að rekstri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar. Drífa starfaði sem deildarstjóri með mannaforráð í grunnskóla í níu ár. Hún hefur starfað sem fræðslufulltrúi Vestmannaeyjabæjar síðastliðin ár og hefur undanfarið leyst af framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins. Hún hefur í störfum sínum leitt og stýrt hópum, teymum og skipulagsheildum þvert á starfsemi, m.a. sem stjórnandi í grunnskóla og sem fræðslufulltrúi Vestmannaeyjabæjar.

Drífa hefur lagt áherslu á samvinnu og samskiptafærni í námi og störfum og hefur verið farsæl í samskiptum og sem leiðtogi. Drífa hefur viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu og þekkir hún vel til opinberrar stjórnsýslu, stjórnsýsluréttar og persónuverndarréttar. Sem fræðslufulltrúi sveitarfélags þekkir Drífa vel til fræðslumála sveitarfélagsins sem er stærsti og umfangsmesti málaflokkur þess.

Þá hefur hún sem starfandi framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs undanfarnar vikur öðlast víðtækari þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu og málefnum sveitarfélagsins en í því starfi hefur hún verið bæjarstjóra til aðstoðar, svarað erindum, sinnt starfsmannahaldi og starfi ritara í bæjarráði og bæjarstjórn.

Drífa er skipulögð, býr yfir góðri hæfni í samskiptum og leiðtogahæfileikum. Hún er sjálfstæð í vinnubrögðum, sýnir frumkvæði og er lausnamiðuð í störfum sínum. Hún hefur gott vald á íslensku og ensku.

Drífa Gunnarsdóttir var metin hæfasti umsækjandinn um starfið. Sú ákvörðun var byggð á heildstæðu mati á því hvernig hún uppfyllir hæfniskröfur sem komu fram í auglýsingu um starfið.

Vestmannaeyjabær býður Drífu hjartanlega velkomna til starfa á nýjum vettvangi, segir í tilkynningunni.

https://eyjar.net/leggja-til-ad-drifa-verdi-radin/

Nýjustu fréttir

Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Glacier Guys með nýtt föstudagslag
„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.