Anton Frans, Morgan Goði og Sigurmundur Gísli komnir áfram í 8-liða úrslit EM með u-18 ára landsliðinu
Frábærir fulltrúar ÍBV, Sigurmundur Gísli, Morgan Goði og Anton Frans. Mynd/ÍBV handbolti

Eyjastrákarnir, Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson eru komnir áfram í 8-liða úrslit með u-18 ára landsliði Íslands, á Evrópumótinu í handbolta sem fer fram í Serbíu. Strákarnir hafa unnið alla leiki sína á mótinu til þessa.

Strákarnir unnu þrjá leiki sannfærandi í riðlakeppninni og tóku með sér tvö stig í milliriðil. Í milliriðlinum byrjuðu strákarnir á að vinna Króatíu, 37-29 og í dag lögðu þeir Portúgal að velli með stórsigri, 41-29. Með sigrinum tryggðu þeir sér sæti í 8-liða úrslitum mótsins. 

Anton Frans skoraði fjögur mörk í leiknum gegn Portúgal og þrjú gegn Króatíu. Markmaðurinn, Morgan Goði, skoraði eitt mark gegn Portúgal og varði tvö skot og 14 skot í leiknum gegn Króatíu. Sigurmundur Gísli varði 12 skot gegn Portúgal og þá sýndi hann frábær tilþrif í markinu í riðlakeppninni gegn Sviss en það var Handkastið sem sýndi frá þegar hann hljóp inn á völlinn og kastaði sér fyrir boltann.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Ný strætóáætlun til og frá Landeyjahöfn
Vetrarstarf ÍBV hefst í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.