Aukin þjónusta fyrir foreldra í forgangi

Grunnskóli Vestmannaeyja mun frá og með mánudeginum 30. mars, bjóða upp á skólavistun fyrir börn Foreldrar/forráðmanna sem eru í framlínustörfum og eiga rétt á forgangi fyrir nemendur í 1. – 4. bekk en Grunnskóli Vestmannaeyja hefur frá því að fjarkennsla hófst einungis tekið á móti börnum í 1. og 2. bekk í sömu stöðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grunnskóla Vestmannaeyja.

Er þessi ákvörðun tekin í samráði við umdæmislækni sóttvarna. Foreldrar/forráðmenn sem eru í framlínustörfum og eiga rétt á forgangi hafa þurft að sækja um forgang fyrir börn sín í skóla, leikskóla og frístund í gegnum www.island.is. Einnig þurfa foreldrar barna í 3. og 4. bekk þá að sækja um forgang sérstaklega til skólastjóra annaros@grv.is

 

Nýjustu fréttir

Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.