Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu

Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu sem fram fór á Akranesi um helgina. Norðurálsmótið er haldið árlega og er ætlað yngstu iðkendum í fótbolta, strákum og stelpum í 7. og 8. flokki. Alls fóru fjögur lið frá ÍBV, skipuð strákum fæddum 2018 og 2019. Mótið hófst með setningu í hádeginu á föstudag og […]
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt

Vigdís Rafnsdóttir, eða Vigga eins og flestir þekkja hana, hefur svo sannarlega ferðast mikið í gegnum tíðina. Hún hefur heimsótt um 86 lönd og farið í 26 siglingar, hvorki meira en né minna. Ferðalögin hafa leitt hana víða um heim og gefið henni einstaka sýn á ólíka menningu, lifnaðarhætti og upplifanir. Blaðamaður settist niður með […]
Innblásturinn er alls staðar

Jónína Björk Hjörleifsdóttir eða Jóný eins og hún er kölluð var á dögunum valin bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026. Jóný er fædd og uppalin í Eyjum og er fjölhæf listakona sem hefur skapað ótal hluti í gegnum tíðina og unnið með margs konar efni. Keramik orðið sífellt stærri hluti af sköpun hennar, bæði sem listform og sem leið […]
Sjómannsfjölskyldan mín

Ég var 19 ára þegar ég kynntist manninum mínum. Þá var hann sjómaður – og er enn í dag. Einnig kynntist ég fjölskyldu sem lifði og hrærðist í sjómennsku, pabbi hans skipstjóri og foreldrar hans voru líka í útgerð með Leif og Guðnýju. Ég þekkti tengdaforeldra mína, nánast ekkert, en ég kynntist þeim fljótt og […]
Dagskrá 17. júní

Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, verður haldinn hátíðlegur hér í Eyjum með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagurinn verður með hefðbundnu sniði þar sem boðið verður upp á skrúðgöngu, hátíðarathöfn á Vigtartorgi, fjölbreytt skemmtiatriði og ýmsa afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild sinni. 09:00 Fánar dregnir að húni í bænum. 10:30 […]
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum

Fyrir um fimm árum ákváðu hjónin Heimir Hauksson og Særún Vignisdóttir að festa kaup á húsi í Vestmannaeyjum eftir að hafa heimsótt Eyjar reglulega og eignast hér góða vini og kunningja. Eyjafréttir ræddu við þau um húsakaupin og hvað það var sem heillaði þau við staðinn. Heimir segir hugmyndina að kaupunum hafa kviknað þegar þau […]
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum

Rakel Haraldsdóttir hefur um árabil haft áhuga á andlegum málefnum og fyrir tveimur árum hóf hún nám í Reiki. Í dag býður hún upp á Reikiheilun og segir meðferðarformið hafa haft jákvæð áhrif á eigið líf. Dagana 19.-21. júní verður hún í Vestmannaeyjum þar sem hún mun bjóða upp á Reikiheilun í hlýju og öruggu […]
Þarf vinnuskóli að vera vesen?

Vestmannaeyjabær hefur boðið upp á fjölbreytt sumarstörf fyrir ungmenni, ekki síst í vinnuskólanum þar sem nemendur í 7.–10. bekk fá sitt fyrsta tækifæri til að stíga inn á vinnumarkaðinn. Þar læra þau ábyrgð, samvinnu og mikilvægi þess að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Í ár sóttu 54 börn fædd 2013, og eru í 7. […]
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni

„Ég hef verið umkringd sjómönnum alla ævi, afar mínir voru sjómenn, pabbi, bræður mínir, sonurinn, mágar og svilar. Einnig hafa tengdasynirnir reynt sjómennskuna. Eiginmaðurinn, Gylfi Sigurðsson var á sjó, en honum var gerð grein fyrir því fljótlega í okkar sambandi að ég ætlaði ekki búa með sjómanni,” segir sjómannsdóttirin, Guðrún Erlingsdóttir. ,,Sjómennska, tónlist og plötuútgáfa […]
Skólanum slitið á Stakkó

Skólaslit Grunnskóla Vestmannaeyja fóru fram á Stakkó í morgun við hátíðlega athöfn. Nemendur mættu fyrst í skólann klukkan 10:00 og gengu þaðan ásamt kennurum yfir á Stakkó þar sem skólaárinu var formlega slitið. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Skólalúðrasveit Vestmannaeyja lék fyrir gesti og nemendur í yngri bekkjum sýndu dansatriði sem þeir höfðu æft fyrir […]
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi

„Ég var 17 ára þegar við Gunnar kynntumst,“ segir Selma Jóhannsdóttir, eiginkona Gunnars heitins Jónssonar, og hlær. „Við vorum kannski þroskaðri á þessum árum og aðstæður voru líka aðrar. Við gátum byggt okkur hús og fórum fyrr að heiman en krakkar gera í dag.“ Selma segir að fólk sé líka lengur í námi nú en […]
Halli Geir Evrópumeistari í sjómanni

Í maí síðastliðnum náði Eyjamaðurinn Haraldur Geir Hlöðversson frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í sjómanni (armwrestling), sem haldið var í Búdapest í Ungverjalandi. Mótið er haldið árlega í einhverju Evrópulandi og var þetta í 35. sinn sem það fór fram. Keppendur voru rúmlega 1300 talsins og dreifðust þeir á fjölmörg hótel í nágrenni keppnishallarinnar MTK Sportpark. Við heyrðum í Halla Geir, eins og hann […]
Sjórinn var aldrei í plönunum, segir Sigurhanna

„Við kynntumst þegar við vorum að undirbúa árshátíð í Framhaldsskólanum í mars 1989. Ég var á fyrsta ári og hann að klára. Ég var að verða 17 ára og hann 21 árs,“ segir Sigurhanna Friðþórsdóttir, eiginkona Jóns Atla. Hún segir að það hafi ekki beinlínis verið á planinu að hann færi á sjóinn. „Við bjuggum í Reykjavík. Hann hafði nýlokið […]
Sjómannadags fjör í Höllinni: myndasyrpa

Fjöldi fólks kom saman í Höllinni um helgina til að fagna sjómannadeginum með glæsilegri skemmtun þar sem góður matur, tónlist og skemmtileg dagskrá settu svip sinn á kvöldið. Gestir nutu veglegs hlaðborðs frá Einsa kalda á meðan fjölbreytt dagskrá fór fram. Veislustjóri kvöldsins var Andri Ívars og með honum á sviði voru Stebbi Jak og […]
Bræðurnir Jón Atli og Árni rifja upp árin á Ísleifi

„Ísleifur var á síld í Norðursjónum sumrin 1973 og 1974 og þá fórum við fjölskyldan út og bjuggum í Hirtshals í Danmörku, þar sem íslensku bátarnir lönduðu mikið. Ég man ekki mikið eftir þessu, enda aðeins fimm og sex ára gamall, en á leiðinni til Danmerkur var nótinni kastað og ég man eftir að karlarnir […]
Gætti vandlega að græna litnum á Ísleifunum

Margar sögur hafa verið sagðar af Ársæli Sveinssyni útgerðarmanni á Fögrubrekku og eina þeirra, um það hvernig hann eignaðist sinn fyrsta Ísleif árið 1927, sagði hann sjálfur í viðtali sem Árni Johnsen tók við hann og birtist í Lesbók Morgunblaðsins árið 1968. „Ég fór til Reykjavíkur til að ganga frá kaupunum og þar sem ég […]
Sjómannadagskrá laugardags

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Boðið verður upp á skemmtun, leiki, dorgveiðikeppni og fjölskyldufjör yfir daginn. Kvöldið endar með veglegri sjómannadagsskemmtun og balli í Höllinni. Dagskrá 6. júní 11:00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Naust- hamars bryggju. Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar o.fl. Svali og prins póló […]
Sjómannskonur: Ásta Jóna

Sjómannslífið er stór partur af samfélaginu í Vestmannaeyjum og þekkja margir hvernig það er að eiga maka sem vinnur á sjó. Í tilefni sjómannadagsins fengu Eyjafréttir nokkrar sjómannskonur til að svara nokkrum spurningum um lífið með sjómanni, hvernig fjölskyldulífið gengur fyrir sig, kostunum og göllunum við starfið og hefðum tengdum sjómannadeginum. Fjölskylda? Eiginmaður Sveinbjörn Óðinsson, […]
Sjómannskonur: Harpa Hjartardóttir

Sjómannslífið er stór partur af samfélaginu í Vestmannaeyjum og þekkja margir hvernig það er að eiga maka sem vinnur á sjó. Í tilefni sjómannadagsins fengu Eyjafréttir nokkrar sjómannskonur til að svara nokkrum spurningum um lífið með sjómanni, hvernig fjölskyldulífið gengur fyrir sig, kostunum og göllunum við starfið og hefðum tengdum sjómannadeginum. Fjölskylda? Gift Daníel Andra […]
Sjómannskonur: Birna Karen

Fjölskylda? Maðurinn minn er Leó Snær Sveinsson. Við eigum 3 börn, þau Baltasar Hrafn, Hrafntinnu Rós og Gabríel Hrafn. Hversu lengi hefur þú verið sjómannsfrú? Síðan 2018. Á hvaða skipi er maki þinn? Hann er stýrimaður á Vestmannaey. Kynnist þið þegar maki er á sjó? Nei, við kynntumst þegar hann fór í viðskiptafræði í HR. […]