Tómstundahlaðborð í Vestmannaeyjum

Tómstundahlaðborð verður haldið í sal Íþróttamiðstöðvarinnar laugardaginn 29. ágúst. frá kl 10-12. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt tómstunda- og íþróttastarf í Vestmannaeyjum og fá yfirsýn yfir það sem verður í boði í vetur.

Markmið Tómstundahlaðborðsins er að félög, stofnanir og aðilar sem bjóða upp á skipulagt tómstundastarf komi saman á einum stað svo íbúar geti kynnt sér það fjölbreytta starf sem stendur til boða í Vestmannaeyjum. Gestir geta fengið upplýsingar um námskeið, æfingar, félagsstarf og önnur verkefni sem henta ólíkum áhugasviðum og aldri.

Viðburðurinn er liður í því að auðvelda fjölskyldum að velja starf fyrir veturinn og styrkja þátttöku íbúa í uppbyggilegu tómstundastarfi. Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi getur haft jákvæð áhrif á félagsfærni, sjálfstraust og almenna vellíðan fólks.

Þau félög, samtök eða aðilar sem bjóða upp á skipulagt tómstunda-, íþrótta- eða æskulýðsstarf og telja sig eiga heima á Tómstundahlaðborðinu, en ekki hefur verið haft samband við, eru hvött til að hafa samband við Eyrúnu, verkefnastjóra æskulýðs- og tómstundamála, með að senda póst á eyrunharalds@vestmannaeyjar.is

Skipuleggjendur hvetja alla íbúa til að mæta og nýta tækifærið til að skoða það sem er í boði áður en vetrarstarfið hefst af fullum krafti.

Nýjustu fréttir

Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.