Neytendatúr Björgvin G. Sigurðssonar um landið byrjaði á Selfossi í gær
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra mun á næstu tveimur vikum efna til funda víðs vegar um landið þar sem fjallað verður um neytendamál. Fundaröðin sem nefnist Neytendatúr” hófst með fjölmennum fundi í gærkveldi á heimavelli ráðherra í Tryggvaskála á Selfossi. Fylgdarlið og ræðumenn með viðskiparáðherra á Selfossfundinum voru: “ (meira…)
37 ára karl kærður fyrir að nauðga 13 ára stúlku
37 ára gamall karlmaður frá Eyrarbakka var handtekinn um helgina vegna gruns um að hann hafi notfært sér ölvunarástand 13 ára gamallar stúlku og haft við hana samræði. Maðurinn bauð stúlkunni og vinkonum hennar í samkvæmi á heimili sínu. Í samkvæminu var áfengi haft um hönd og fór maðurinn meðal annars í heitan pott ásamt […]
Hermann er stríðsmaður

George Burley og lærisveinar hans í skoska landsliðinu eru undir mikilli pressu fyrir leikinn við Ísland í kvöld í undankeppni HM í knattspyrnu eftir óvænt tap gegn Makedóníu á laugardaginn. „Við vitum hvernig við ætlum að spila á móti Íslendingum. Þeir spila allt öðru vísi en Makedónar, og eru líkari breskum liðum. Þar að auki […]
Vetrarstarf Jórukórsins að hefjast
Á Selfossi starfar kvennakórinn Jórur undir stjórn Hlínar Pétursdóttur. Þær hittast einu sinni í viku og syngja saman. Sönglagavalið hjá þeim er fjölbreytt en þó frekar í léttari kantinum. Jórurnar hvetja allar áhugasamar konur að koma og kynna sér kórstarfið. Æfingar eru kl. 20 alla miðvikudaga í sal Karlakórs Selfoss að Gagnheiði 40 á Selfossi […]
Selfossstrákar með 19 ára landsliðinu
U 19 ára lið Íslands í knattspyrnu leikur nú 2 vináttuleiki í Belfast á Norður Írlandi við heimamenn.Fyrri landsleikurinn var á mánudag og lutu við í lægra haldi 2-0.Seinni leikurinn fer fram á miðvikudag. Tveir leikmenn úr liði Selfoss eru í hópnum þeir Viðar Örn Kjartansson og Sigurður Eyberg Guðlaugsson, en Sigurður var í byrjunarliðinu […]
Lögreglan á Selfossi rannsakar meint kynferðisbrotamál

Lögreglan á Selfossi hefur nú til rannsóknar meint kynferðisbrot fullorðins karlmanns gagnvart stúlku, sem er undir lögaldri. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu og yfirheyrður um helgina. Ekki var gerð krafa um gæsluvarðhald yfir manninum. (meira…)
Hvergi slegið af í að gera lundaballið sem veglegast.

Vegna orðróms sem gengur um allann hinn vestræna heim, þess efnis að uppselt sé á Lundaballið 2008 sem nú er í höndum Helliseyinga, þá vilja Helliseyingar koma eftirfarandi á framfæri: (meira…)
Árni Johnsen hættir við mál gegn Agnesi

Árni Johnsen alþingismaður hefur hætt við málaferli gegn Agnesi Bragadóttur blaðamanni á Morgunblaðinu. Árni sagði í samtali við Vísi að hann hreinlega nennti ekki að vera að eltast við Agnesi. Og Árni hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu (með þrem nýyrðum) um þetta mál. (meira…)
Treg síldveiði

Treg veiði hefur verið hjá þeim fáu síldveiðiskipum, sem reynt hafa fyrir sér í Síldarsmugunni á milli Íslands og Noregs að undanförnu. Eitt síldarskipanna, sem Fréttastofan náði sambandi við í morgun, er ekki komið með nema með 800 tonn af síld til bræðslu og 250 tonn af frystum afurðum eftir hálfs mánaðar útiveru. (meira…)
�?kumaður neitaði að gefa þvagsýni
Sextán ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur, tveir ökumenn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir fyrir ölvunarakstur. Annar þeirra ók útaf veginum í Kömbum á stæði við útsýnisskífu. Maðurinn neitaði að hafa ekið ölvaður. Hann var handtekinn og færður í lögreglustöð þar sem frá honum var tekið blóðsýni. (meira…)
Mosi skemmdur á stóru svæði
Mosi hefur drepist á stóru svæði við Hellisheiðarvirkjun vegna mengunar. Sigurður H. Magnússon, gróðurvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir að endurmeta þurfi mengunarvarnir á svæðinu. Náttúrufræðistofnun gerði bæði Orkuveitu Reykjavíkur og Umhverfisstofnun viðvart um málið í dag. (meira…)
10.000 laxar úr Ytri-Rangá
Veiðin í Ytri-Rangá í sumar hefur slegið öll met í sumar og komst í 10.009 laxa um hádegisbil í dag. Enn er töluvert eftir af veiðitímabilinu. Fyrir rúmri viku var opnað fyrir maðkaveiði, en laxinum hefur eingöngu verið boðin fluga það sem af er sumri. Í fyrsta maðkahollinu veiddust 1119 laxar á 18 stangir, eða […]
Netabátar í september
Það hefur lítið verið fjallað um netabátanna hérna á síðunni eftir að vetrarvertiðinni lauk þann 11 maí. Allavega þá hefur göngu sína aftur hérna á síðunni netalistinn, og verður hann þannig framvegis í það minnsta út þetta ár. Hugsanlega verður einhver breyting á honum á vetrarvertíðinni sjálfri.Þessi listi er 25 bátar, og er enginn greinarmunur […]
Aðalfundur Starfsmannafélags FSu
Aðalfundur starfsmannafélags FSu var haldinn föstudaginn 5. september. Ingibjörg Ólöf Sigurðardóttir fráfarandi formaður flutti skýrslu stjórnar sem var hin skemmtilegasta og sýnir skýrslan vel hve fjölbreytt starf félagsins er. Ægir Sigurðsson gjaldkeri gerði grein fyrir ársreikningi. Hulda Finnlaugsdóttir ritaði fundargerð. Ný stjórn var kjörin og voru eftirtaldir kosnir í stjórn: (meira…)
Björgvin G. Sigurðsson í neytendatúr um landið og byrjar á Selfossi á morgun
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hyggst á næstu tveimur vikum efna til funda víðs vegar um landið þar sem fjallað verður um neytendamál. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu er þetta liður í stefnu ríkisstjórnarinnar að byggja upp öflugt ráðuneyti neytendamála innan viðskiptaráðuneytisins. Unnin hefur verið skýrsla um stöðu neytenda á Íslandi og […]
ÍSLANDSMEISTARAR 2008!

2. flokkur ÍBV varð í kvöld Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna 2008 með því að leggja Val að velli 3:1 í lokaleik sínum. Eyjastúlkur hafa bætt sig gríðarlega í sumar og fæstir áttu von á því að liðið myndi standa uppi sem Íslandsmeistari í lok tímabilsins. En eftir slæma byrjun á Íslandsmótinu héldu stelpunum engin bönd […]
Lík finnst í Kaplagjótu

Lögreglu var í dag tilkynnt um lík í Kaplagjótu, sunnan í Dalfjalli. Litlar upplýsingar var að fá hjá lögreglu sem var á staðnum en unnið er að rannsókn málsins. Ekki er talið að um saknæmt atvik sé að ræða. (meira…)
�?órður Rafn tekur við af Sigurgeiri Brynjari

Þórður Rafn Sigurðsson eða Rabbi á Dala Rafn tók nú í morgun við sem formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja. Fráfarandi formaður, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni hverfur alfarið úr stjórn félagsins. Auk þess verða nokkrar breytingar á stjórn félagsins en þetta var ákveðið á aðalfundi Útvegsbændafélagsins í morgun. (meira…)
Íslandsmeistaratitillinn handan við hornið

Í dag, mánudag, tekur 2. flokks lið ÍBV á móti Valsstúlkum. Hefst leikurinn kl. 17.00 á Helgafellsvellinum. Er þetta algjör úrslitaleikur fyrir Eyjastúlkur því beri þær sigur úr býtum verða þær Íslandsmeistarar á A-riðli. Fyrri leikur liðanna endaði með sigri ÍBV 4-2 og eiga þær því góða möguleika í dag. Mætum öll á völlinn og […]
Kveikt í rusli við Sorpu

Í gærkvöldi var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út vegna elds á svæði sorpeyðingastöðvarinnar. Talsverður eldur var í gámi og öðru rusli þegar að var komið en vel gekk að slökkva eldinn. Mikill eldsmatur var á svæðinu og vaxandi vindur þannig að talsverð hætta var á að illa færi. Þetta var jafnframt þriðji bruninn eða íkveikjan sem […]