Afla landað fram hjá vigt

Föstudaginn 20. júní sl. höfðu starfsmenn Fiskistofu samband við lögreglu og óskaði eftir aðstoð vegna gruns um að verið væri að landa afla framhjá vigt. Við rannsókn lögreglu kom í ljós að í einu kari var um 250 kg. af humri, en ofan á humarinn hafði verið settur skötuselur. Við nánari leit í veiðafærahúsi útgerðarinnar […]

Kvöldganga eða síðbúin Jónsmessuganga

Næstkomandi fimmtudagskvöld, 25. júní kl. 22.00, verður hin árlega Jónsmessunæsturganga. Gengið verður frá Íþróttamiðstöðinni á Helgafell, Sæfell og til baka vestur Hamarinn aftur að Íþróttamiðstöðinni. Sundlaugin verður opin þetta kvöld til kl. 01.00. (meira…)

Lundaballið verður 27. september

Þó enn séu rúmlega fjórir mánuðir í 27. september n.k. þá er allt í lagi að auglýsa lundaballið í ár fyrir vini okkar í Hellisey”. – Þannig segja þeir Bjarnareyingar á heimsíðu sinni, http://bjarnarey.is “ (meira…)

Lítill stuðningur við stóriðju kemur á óvart

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir það ekki koma sér á óvart „að menn gjaldi varhug við stórvirkjunum eftir þær harðvítugu deilur sem hafa orðið á síðustu árum. Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins styðja 57 prósent landsmanna ekki frekari virkjanir fyrir orkufrekan iðnað. “ (meira…)

Viðgerðir í Sundhöll Selfoss

Stóra útilaugin í Sundhöll Selfoss er lokuð frá hádegi mánudaginn 23. júní til miðvikudagsins 25. júní vegna viðgerða eftir jarðskjálftana 29. maí síðastliðinn. Einnig eru rennibrautin, osturinn og sveppurinn lokuð vegna viðgerða eftir skjálftana. Reynt verður að opna leiktækin aftur svo fljótt sem auðið er. (meira…)

Gripinn við að kasta af sér þvagi

Þau eru af ýmsu tagi málin sem lögreglan á Selfossi glímir við á degi hverjum. Þannig var ungur maður staðinn að því að kasta af sér þvagi utan í hús á Eyrarvegi á Selfossi í liðinni viku en slíkt stríðir gegn lögreglusamþykkt Árborgar. Eftir því sem segir í dagbók lögreglunnar neitaði maðurinn sök en hann […]

IBV fékk Fjölni í Visa-bikarnum

Í dag var dregið í 16 liða úrslitum VISA bikars karla og ljóst að margir athygliverðir leikir fara fram í þeirri umferð. Leikirnir fara fram miðvikudaginn 2. júlí og fimmtudaginn 3. júlí. – ÍBV dróst á móti Fjölni, einum af helstu keppinautum sínum í 1. deildinni í fyrra. Leikurinn verður miðvikudaginn 2. júlí á Fjölnisvelli. […]

Blíðviðri næstu daga

Spá Veðurstofunnar fyrir næstu daga, er afar hagstæð og ekki útlit fyrir annað en Shellmótið verði leikið í blíðu. Spáin er þannig: Hæg vestlæg átt eða hafgola. Bjartviðri, en reikna má með síðdegisskúrum bæði í dag og á morgun. Hiti 11 til 17 stig, en 4 til 9 í nótt. (meira…)

Brotist inn í sumarbústað

Eitt innbrot var tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi í gær. Brotist hafði verið inn í sumarbústað við Þingvallavatn og þar stolið flatskjá og heimabíótækjum. Eigandi hafði ekki verið í bústaðnum um helgina svo óvíst er hvenær innbrotið átti sér stað. (meira…)

Gleðilegir fjölskyldudagar á Stokkseyri

Stokkseyrarkortin eru kort sem gefa frá 20 upp í 50 % afslátt af skemmtilegum dögum á Stokkseyri og lágmarks eldsneytiskostnað, því með kortinu fæst auka 7 krónu afsláttur af lítraverði á Shellskálanum á Stokkseyri og frábært hamborgaratilboð að auki. Stokkseyri er aðeins um 60 km. fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.Förum ekki langt yfir skammt” Stokkseyrarkortið gildir fyrir:“ […]

Selfoss saxar á forskot ÍBV

Selfoss 4 – 0 Víkingur Ó. 1-0 Agnar Bragi Magnússon (’13) 2-0 Boban Jovic (’17) 3-0 Dusan Ivkovic (’65) 4-0 Andri Freyr Björnsson (’78) Selfyssingar tóku á móti Víking Ólafsvík á Selfossvelli í dag. (meira…)

Haukar kláruðu Eyjamenn – fyrsta tapið orðið að veruleika

Það var blíðskapar veður þegar Eyjamenn heimsótti Hauka á Ásvöllum. Það voru einungis tvær mínútur liðnar af leiknum er Ásgeir Þór Ingólfsson átti fyrsta skot leiksins, en skot hans fór rétt yfir markið. Næstu mínútur voru fremur rólegar og bæði lið að reyna fyrir sér. Á 20. mínútu keyrði Hilmar Geir Eiðsson upp hægri kantinn […]

Sara Dögg Sumarstúlka Vestmannaeyja 2008

Sara Dögg Guðjónsdóttir var í gærkvöldi, valin Sumarstúlka Vestmannaeyja 2008. Alls tóku 15 stúlkur þátt í keppninni, allt glæsilegar stúlkur og val dómnefndar hefur ekki verið auðvelt. (meira…)

Fengu hval í trollið

Héðan er það helst að frétta að þegar trollið var híft í nótt kom hvalur upp með því. Hann hafði flækst í möskvunum og var vel flæktur í þeim. Hvalurinn reyndist vera hrefna. Það æstust leikar um leið og það kom í ljós og byrjuðu menn strax að græja sig í að koma hvalnum inn […]

Heil umferð í 1.deild karla í dag

Heil umferð fer fram í fyrstu deild karla í dag. Allir á völlinn! 1.deild karla: 14:00 Fjarðabyggð – Stjarnan (Eskifjarðarvöllur) 14:00 Haukar – ÍBV (Ásvellir) 16:00 KA – Leiknir R. (Akureyrarvöllur) 16:00 Selfoss – Víkingur Ó. (Selfossvöllur) 16:00 Njarðvík – KS/Leiftur (Njarðvíkurvöllur) 16:00 Víkingur R. – Þór (Víkingsvöllur) (meira…)

Erilsamt á Selfossi í nótt

Þrír menn voru handteknir í þremur aðskildum málum á Selfossi í nótt. Mennirnir voru handteknir fyrir ölvun, óspektir, eignaspjöll og að ráðast gegn lögreglu. Mikill erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt og að sögn varðstjóra var margt fólk á ferðinni enda kominn sumartími. (meira…)

Nýi Fróði kominn á humarveiðar

Endeavour III hefur nú fengið nafnið Fróði II ÁR 38 og hefur skipið tekið við af Fróða ÁR 33 sem seldur hefur verið til Noregs. Fróði II er nú á humarveiðum og hafa þær gengið ágætlega og skipið reynst vel, að því er fram kemur á heimasíðu Ramma hf. sem gerir skipið út. (meira…)

Keiko gleymdur og grafinn

Bæjarstjórnin í Halsa hefur ákveðið að hætta að verja fé til að viðhalda gröf háhyrningsins Keikós. Þar hefur hann hvílt síðan hann lést 12. desember 2003. „Það er lítill áhugi á gröfinni, segir Børje Allander bæjarráðsmaður.” (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.