Tilboðsfrestur í smíði Vestmannaeyjaferju til 14. ágúst nk.

Smíði Vestmannaeyjaferju fór í útboð hjá Ríkiskaupum 19. júní sl. og er frestur skipasmíðastöðva til þess að skila tilboðum til 14. ágúst 2008. Gert er ráð fyrir að ferjan verði 60-70 metrar á lengd og 15-17 metrar að breidd. (meira…)
Lundavarpið fyrr á ferðinni í ár

Lundavarp í Vestmannaeyjum er nú um tíu dögum seinna á ferðinni en í meðalári en samt tíu dögum fyrr á ferðinni en það var í fyrra, að sögn Erps Snæs Hansen, sviðsstjóra vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum. (meira…)
Olíuverð á eftir að hríðlækka
Olaf Haahr, sem eitt sinn var nefndur bensínkóngurinn í Danmörku, býst við að olíuverð hríðfalli á næstunni, eða um leið og fjárfestar og spákaupmenn missi áhugann á olíunni. (meira…)
Aldrei verið eins stolt af þjóðerni mínu

,,Þetta leggst mjög vel í mig, hópurinn er í góðu standi og við erum tilbúnar til leiks, sagði Margrét Lára Viðarsdóttir framherji íslenska landsliðsins sem mætir Slóveníu í undankeppni EM 2009 klukkan 14:00 í dag en leikið er Laugardalsvelli. “ (meira…)
Ungdómsupplyfting í Gónhól
Sérstakir uppbyggingardagar fyrir ungdóminn verða haldnir um helgina í Gónhól á Eyrarbakka. Annar hluti Myndlistarkeppninnar verður haldinn á laugardag og keppt verður í þremur aldursflokkum. Myndefnið er Uppáhaldsdýrið mitt.Vegleg verðlaun verða veitt á sunnudag og verður þá einnig tískusýning á barnafatnaði, götuleikhús og margt fleira. Í sumar standa yfir myndlistasýningar, sölubásar og prúttmarkaðir í Gónhól […]
Annars tala ég við fyrri leigusala þinn

Kaupsýslumaður utan af landi fór í viðskiptaferð til Reykjavíkur. Hann hitti þar unga og huggulega konu og fékk að njóta ásta með henni næturlangt.Umsamið verð fyrir greiðann var 30.000 kr. Daginn eftir mundi kaupsýslumaðurinn að hann var ekki með reiðufé á sér, bara greiðslukort, sem hann gat ekki notað til að borga konunni. Því samdi […]
Guðjón �?lafsson hannar 35 ára goslokamerkið

Í tilefni 35 ára frá goslokum, óskaði goslokanefndin eftir tillögum að merki 35 ára gosloka. Hugmynd Guðjóns Ólafssonar frá Gíslholti varð fyrir valinu. Einkar táknrænt og smekklegt merki. Það verður sett á fána og veifur, sem Fimleikafélagið Rán mun selja í goslokavikunni. (meira…)
Vill afnema lög um orlof húsmæðra
Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gærdag, var samþykkt ályktun um afnám laga um orlof húsmæðra. Var ályktunin samþykkt samhljóða. Vert er að geta þess að bæjarstjórnarfundinn sátu eingöngu konur. Ályktunin var svohljóðandi: (meira…)
Fékk brak úr �?feigi VE í trollið

Frár VE, sem nú er að landa í Vestmannaeyjum, var með brak úr bát, sem hann fékk í trollið út af Reynisfjalli í síðustu veiðiferð. Sindri Óskarsson, skipstjóri á Frá, sagði að þarna væri um að ræða hlut af brú Ófeigs VE sem sökk út af Vík í desember 2001. (meira…)
Tap hjá Kvennaliði ÍBV og strákunum í KFS

Kvennalið ÍBV fékk Grindavíkurstúlkur í heimsókn í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í aldeilis frábæru veðri á Hásteinsvelli. Mörg urðu mörkin ekki í leiknum, aðeins eitt mark var skorað, og það gerðu Grindavíkurstúlkur í síðari hálfleik. Þrátt fyrir tapið halda Eyjastúlkur 2. sæti sínu í deildinni á betra markahlutfalli. Eru með 6 stig eftir fjóra leiki. […]
Manntalið 1870 komið á netið

Þjóðskjalasafn Íslands hefur birt stafræna útgáfu manntalsins 1870 á netinu. Þetta er fyrsta manntalið af tíu, sem Þjóðskjalasafnið hefur lokið yfirfærslu á í stafrænt form í sérstöku átaksverkefni á vegum ríkisstjórnar Íslands í tengslum við mótvægisaðgerðir í atvinnumálum. Manntalið 1870 var unnið í Vestmannaeyjum. Fyrir eru á vef Þjóðskjalasafnsins manntölin 1703 og 1835. Hægt er […]
Bæjarráð �?lfuss veitir leyfi
Bæjarráð Ölfuss hefur samþykkt að veita Vegagerðinni leyfi fyrir þeim hluta Suðurstrandarvegar sem liggur innan sveitarfélagsins. Um er að ræða 48 km vegkafla sem liggur á milli Ísólfsskála og Þorlákshafnar. Í heild sinni er framkvæmdin í Grindavíkurbæ, Hafnarfjarðarbæ og í sveitarfélaginu Ölfusi. (meira…)
Gæfuspor hófst á Selfossi í gær
Gæfuspor, landsverkefni á vegum UMFÍ, hófst við Sparisjóðinn á Selfossi í gærmorgun. Verkefnið er fyrir fólk 60 ára og eldri og er ætlað til að hvetja fólk til að fara út að ganga og hreyfa sig. Um 50 manns mættu til leiks og fengu göngujakka að gjöf frá Sparisjóðinum. Lögð er áhersla á að hver […]
Kvenlegur bæjarstjórnarfundur í Eyjum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundaði í dag í 1406 sinn en það sem þótti merkilegt við þennan fund var að einungis konur sóttu hann enda kvennadagur í dag en þrjú mál lágu fyrir fundinum. (meira…)
VISA-bikar: Knattspyrna
Átta leikir fóru fram í Visa-bikar karla í kvöld og flest úrslitin voru eftir bókinni gömlu og góðu. 2. deildarlið Hamars í Hveragerði sigraði Selfyssinga óvænt í Suðurlandsslag. Úrslit kvöldsins: (meira…)
Samstarfssamningur KHÍ og Sveitarfélagsins Árborgar
Miðvikudaginn 18.júní var undirritaður samstarfssamningur milli Rannsóknarstofu í íþrótta- og heilsufræðum KHÍ og Sveitarfélagsins Árborgar. Samningurinn var undirritaður í sól og blíðu á íþróttasvæðinu við Engjaveg að viðstöddum þátttakendum í rannsókninni sem Árborg mun styrkja. (meira…)
Fréttir koma út síðdegis í dag
Fréttir koma út í dag, – degi seinna en venjulegt er. Ástæðan er að s.l. þriðjudagur bar uppá 17. júní, en þriðjudagur er helsti vinnsludagur blaðsins. Fréttir eru sem fyrr, stútfullar af skemmtilegu efni. – plað á sögu Golfklúbbsins sem nú fagnar 70 ára afmæli sínu, Pæjamótið gert upp. Hátíðarhöld 17. júní fá sitt pláss, […]
Knattspyrna – Leikir dagsins – 32 liða úrslit Visa-bikars karla
Átta leikir eru í 32-liða úrslitum Visa-bikars karla í kvöld. Mörg lið úr Landsbankadeildinni verða á ferðinni en þau mætast þó ekki innbyrðis. Þá er einn leikur í fyrstu deild kvenna í kvöld. Allir á völlinn! VISA-bikar karla: 18:00 Breiðablik – KA (Kópavogsvöllur) 19:15 Þór – Valur (Akureyrarvöllur) 19:15 Keflavík – Stjarnan (Sparisjóðsvöllurinn Keflavík) 19:15 […]
Verður eingöngu skipaður konum

Bæjarstjórnarfundur verður í dag kl. 18.00. Í sjálfu sér eru það ekki sérstök tíðindi, þar sem slíkir fundir eru jafnan haldnir mánaðarlega. Það eru þó tíðindi að fundurinn í dag verður eingöngu skipaður konum. Væntanlega er það í tilefni kvenréttindadagsins, 19. júní. (meira…)
Sumarhátíð á Stakkó

Sumarhátið leikskólanna var haldin á Stakkagerðistúni miðvikudagsmorguninn 18 júní s.l. Fjörið hófst með skrúðgöngu frá Barnaskólanum og var gengið undir trumbuslætti sem leið lá á Stakkagerðistún. Þegar þangað var komið settist hópurinn niður og söng nokkur lög við gítarundirleik. (meira…)