Menn mega ekki gefast upp því ekki kemur síldin til okkar

Það er víst búið að kasta trollinu hér en árangurinn er eitthvað að standa á sér. Við erum rétt austan við Jan Mayen og eru eða voru einhverjar peðrur hér á stangli en um leið og trollið fór í hafið þá lét síldin sig hverfa. Það má því segja að við séum að leita með […]
�?g stend sjálfur fyrir tónleikahaldinu með Megasi

Heill og sæll Hermann Ingi. Sannarlega er leitt að Logar skuli ekki taka þátt í Goslokahátíðinni í ár. Þú kastar fram fullyrðingum í lok greinar þinnar um fyrirhugaða tónleika Megasar og Senuþjófanna í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 3. júlí nk. Mér er bæði ljúft og skylt að leiðrétta þessar rangfærslur hjá þér, enda stend ég fyrir tónleikahaldinu. […]
Alþingi á �?ingvelli
Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og dómsmálaráðherra, í hátíðarræðu sinni á Hrafnseyri í Arnarfirði 17. júní. „Það er því mín skoðun að Alþingi Íslendinga eigi að hafa aðstöðu á Þingvöllum þar sem hægt sé að hafa þingfundi innandyra, taka á móti gestum og halda upp á merkisatburði. Ég tel einnig að vel færi á því […]
Ferð Kvenfélags Selfoss til Reykjavíkur
Kvenfélag Selfoss efnir til hópferðar til Reykjavíkur á kvennamessu sem verður við Þvottarlaugarnar í Laugardal á kvenréttindadaginn sem er í dag fimmtudaginn 19. júní Messan hefst kl. 20:30. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra predikar. (meira…)
Fangaflutningar boðnir út?
Björn Bjarnason segir í nýjum pistli á heimasíðu sinni athugandi að bjóða út flutninga gæsluvarðhaldsfanga milli Litla-Hrauns og Reykjavíkur. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir gæsluvarðhaldsfangelsi leysa þennan vanda en tíma lögreglumanna sé betur varið í annað en akstur. (meira…)
Fyrirhafnarlítið gegn Leikni

ÍBV er komið í 16 liða úrslit Visa bikarkeppninnar eftir fyrirhafnarlítinn sigur gegn Leikni. Liðin mættust í kvöld í veðurblíðunni á Hásteinsvellinum en leikurinn var ekki mikið fyrir augað. Eyjamenn skoruðu tvö mörk með mínútu millibili í fyrri hálfleik og höfðu leikinn í raun í hendi sér allan tímann. Lokatölur urðu 2:0 og er ÍBV […]
Rúður brotnar í leikskólanum á Eyrarbakka
Rúður voru brotnar í leiksólanum Brimveri á Eyrarbakka um helgina. Maður var handtekinn grunaður um verknaðinn. Að sögn lögreglunnar á Selfossi játaði maðurinn að hafa brotið rúðurnar en hann réðist einnig á mann og vann tjón á bíl, sem var í grennd við leikskólann. (meira…)
Fjöldi ferðamanna í maí
Ferðamálastofa sér um talningu á ferðamönnum sem fara um Leifsstöð og er þar hægt að sjá skiptingu þeirra eftir þjóðerni. Niðurstöður fyrir maí liggja nú fyrir og þar með fimm fyrstu mánuðir ársins. Alls fóru tæplega 36 þúsund erlendir gestir um Leifsstöð í maí, samanborið við rúmlega 34 þúsund í sama mánuði í fyrra. Fjölgunin […]
�?ingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi funda í Eyjum

Haldinn verður súpufundur í Ásgarði, félagsheimili sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum, í kvöld, miðvikudaginn 18. júní kl. 18:00. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi þeir Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, Árni Johnsen, Kjartan Ólafsson og Björk Guðjónsdóttir boða til fundarins. Eyjamenn eru hvattir til að mæta á fundinn og ræða mikilvæg málefni byggðarlagsins og landsins alls. (meira…)
Innbrot, eignaspjöll og ölvun við akstur

Það var í mörg horn að líta hjá lögreglu í vikunni sem leið og má m.a. nefna verkefni er varðar innbrot, eignaspjöll og ölvun við akstur. Þá sinnti lögreglan að vanda hinum hefðbundnu verkefnum við að aðstoða borgarana. Þrjú eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglunnar í vikunni sem leið. Rúða var brotin í vinnuvél sem var […]
Leikskólabörn gæða sér á snúðum og kókómjólk
Vilberg kökuhús á Selfossi hefur undanfarnar vikur boðið öllum leikskólum bæjarins í heimsókn þar sem þau fá snúð og kókómjólk. Var þetta gert fyrst fyrir 2 árum og þótti þetta það skemmtilegt framtak að ákveðið var að endurtaka leikinn nú. Starfsfólk Vilbergs hafði á orði að gaman væri hvað börnin væru kurteis, alltaf hafi þau […]
ÍBV tekur á móti Leikni í kvöld

Í kvöld, klukkan 19.15 tekur lið ÍBV á móti Leikni úr Reykajvík í 32ja liða úrslitum Visa bikarkeppninnar en leikurinn fer fram á Hásteinsvelli. Liðin tvö leika bæði í 1. deild og hafa einu sinni mæst áður í sumar, þá einnig á Hásteinsvelli en leiknum lyktaði með 2:0 sigri ÍBV og skoraði Atli Heimisson bæði […]
20 tonna olíutankur rann af flutningavagni

Stór olíutankur, sem er um 20 tonn að þyngd, rann í dag af flutningavagni sem var að flytja hann á milli staða í Vestmannaeyjum. Það var hins vegar lán í óláni að tankurinn valt ekki allur af, heldur lagðist niður í jörðina, hálfur á vagninum. Hins vegar mátti ekki miklu muna að tankurinn hefði oltið […]
Sumarferð Stokkseyringa
Farið var frá Stokkseyri laugardaginn 14. júní sl. kl.10:00 og voru 16 heimamenn sem fóru frá Ásgeirsbúð, þar sem eldri borgarar eru með félagsmiðstöð, og ekið sem leið lá til Reykjavíkur. Komið við í Mjóddinni og þar bættust í hópinn 14 manns brottfluttra Stokkseyringa. Lagt af stað frá Reykjavík kl. 11:00 (meira…)
Skúta í kröppum dansi við Vestmannaeyjar

Um klukkan 21:40 kallaði lögreglan í Vestmannaeyjum út björgunarbátinn Þór vegna skútu sem virtist vera í vandræðum rétt norðan við Heimaey eða út við Eiði. Aðeins liðu nokkrar mínútur þar til björgunarbáturinn var kominn á staðinn en skipverjar afþökkuðu aðstoðina og sigldu hægt er örugglega í land. Björgunarbáturinn fylgdi þeim þó eftir til öryggis. (meira…)
Dagskrá þjóðhátíðardaginn 17. júní
Samkomulag hefur náðst milli Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar og Björgunarfélags Árborgar um að félagið sjái um 17. júní hátíðarhöldin á Selfossi á komandi þjóðhátíðardegi Íslendinga. Undirbúningur og framkvæmd hátíðarhaldanna verður í höndum Björgunarfélags Árborgar undir stjórn formanns félagsins, Ingvars Guðmundssonar. Sjá dagskrá: http://www.arborg.is/files/ 80295261717juniselfoss_ (meira…)
Hátíðahöldin með hefðbundnu sniði á �?jóðhátíðardaginn

Hátíðahöldin á Þjóðhátíðardaginn 17. júní, verða með hefðbundnu sniði í Vestmannaeyjum. Gengið verður fylktu liði frá Íþróttamiðstöðinni klukkan 13.30, niður á Stakkó en félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika fyrir göngunni. Á Stakkagerðistúni setur Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs, hátíðina en hátíðarræðuna flytur Páll Marvin Jónsson, formaður skólamálaráðs og bæjarfulltrúi. (meira…)
Hreimur frumflutti �?jóðhátíðarlagið á Pæjumóti

Hreimur Örn Heimisson, söngvari hljómsveitarinnar Lands og sona, semur Þjóðhátíðarlagið í ár en áætlað er að frumflytja lagið á morgun, 17. júní. Þetta er í fjórða sinn sem Hreimur semur Þjóðhátíðarlagið en hann samdi m.a. hið geysivinsæla Lífið er yndislegt sem hefur verið einkennislag Þjóðhátíðarinnar síðustu ár. Þjóðhátíðarlagið í ár heitir Brim og boðaföll en […]
Kaupverðið á Gunnari Heiðari rúmar 25 milljónir króna

Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson gengur að öllum líkindum til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Esbjerg frá Hannover í Þýskalandi að lokinni læknisskoðun í dag en hann hefur þegar samþykkt þriggja ára samning við félagið. Christian Hochstätter, yfirmaður íþróttamála hjá Hannover, segir í samtali við þýska dagblaðið Bild að félagaskiptin séu nánast frágengin og er kaupverðið rúmar […]
Mike Riley dæmir á Shellmótinu

Hið árlega Shellmót fyrir 6.flokk karla fer fram í Vestmannaeyjum 25-28.júní næstkomandi. Mike Riley, dómari úr ensku úrvalsdeildinni, mun dæma á mótinu í ár sem og Gylfi Þór Orrason og Egill Már Markússon. Gylfi Þór og Egill Már lögðu báðir flautuna á hilluna síðastliðið haust eftir farsælan feril þar sem þeir dæmdu bæði á Íslandi […]