Raggi Bjarna, �?orgeir Ástvalds og Dr. Spock á �?jóðhátíð

Þeir félagar Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds munu koma fram á kvölddagskrá á föstudagskvöldið á Brekkusviðinu. Raggi og Þorgeir ættu að þekkja þjóðhátíðina vel enda hafa þeir slegið í gegn á Brekkusviðinu síðustu ár. Stemningin í Herjólfsdal hefur verið ógleymanleg þegar Raggi syngur lagið Flottur Jakki og má búast við því að Jakkinn fái að […]

Njarðvík og Selfoss skildu jöfn í gærkveldi

Njarðvík 2 – 2 Selfoss 1-0 Aron Már Smárason (’21) 1-1 Henning Eyþór Jónasson (’57) 2-1 Guðni Erlendsson (’59) 2-2 Viðar Örn Kjartansson (’88) Selfyssingar eru sem fyrr í öðru sæti eftir þessi úrslit en liðið er nú með fimmtán stig, sex stigum á eftir ÍBV og stigi á undan Stjörnunni. (meira…)

Gunnar Heiðar til Danmerkur

Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er á leið til danska félagsins Esbjerg og hann mun að öllum líkindum skrifa undir þriggja ára samning við félagið að lokinni læknisskoðun í fyrramálið. „Þetta er búið að ganga frekar hratt fyrir sig síðustu daga. Það voru þónokkur félög að spyrjast fyrir um mann og bjóða mér samning,“ sagði Gunnar […]

Bílabruni við Gagnheiði

Tveir bílar eyðilögðust og einn skemmdist þegar eldur kom upp í bíl fyrir utan réttingarverkstæði við Gagnheiði á Selfossi í morgun. Lögreglan fékk tilkynningum um eldinn klukkan 07:19 en þegar slökkvilið kom á vettvang logaði í tveimur bílum. Slökkviliðið var fljótt að ráða niðurlögum eldsins en ljóst er að tjón er þó nokkuð. Lögreglu grunar […]

Sló Eyrarsundsbrúnni við

Nýja Þjórsárbrúin hlaut viðurkenningu á ráðstefnu Norræna vegasambandsins, NVF, sem haldin var í Finnlandi um helgina. Þar með sló brúin sjálfri Eyrarsundsbrúnni og fleiri norrænum brúum út. Ráðstefnan sem haldin er fjórða hvert ár er fjallað um allt sem við kemur vegagerð. (meira…)

Hallgrímur með örugga forystu eftir fyrri keppnisdag

Í gær hófst annað stigamót Kaupþingsmótaraðarinnar í golfi unglinga en mótið fer fram á golfvellinum í Vestmannaeyjum. Kylfingarnir fengu hreint afbragðs golfveður, sól og hægur vindur. Völlurinn er líka afar glæsilegur á að líta en Eyjapeyinn Hallgrímur Júlíusson er með nokkuð örugga forystu í strákaflokki, 13 og 14 ára. Hallgrímur lék fyrri hring mótsins á […]

Komin heilu á höldnu til Reykjavíkur

Tuðruferðin Kraftur í kringum Ísland gekk vel en ferðalangarnir kláruðu fyrsta legg ferðarinnar í dag, frá Vestmannaeyjum og til Reykjavíkur. Fall er fararheill segir einhversstaðar og vonandi á það við um ferð hópsins því önnur tuðran af tveimur skemmdist nokkuð rétt fyrir utan Reykjavík og þarfnast talsverðar lagfæringar. Allir komust þó heilu á höldnu í […]

�?rslit og markaskorarar dagsins

Topplið ÍBV heldur áfram sínu skriði en liðið lagði KA á heimavelli í dag. ÍBV 1 – 0 KA 1-0 Atli Heimisson (’66) KS/Leiftur 1 – 4 Haukar 0-1 Ómar Karl Sigurðsson (’30) 0-2 Goran Lukic (’35) 0-3 Denis Curic (’65) 1-3 Ragnar Hauksson (’75) 1-4 Ásgeir Þór Ingólfsson (’79) Leiknir R. 1 – 0 […]

�?reyttir Eyjamenn fengu þrjú stig

Karlalið ÍBV tók á móti KA í sjöundu umferð í blíðunni á Hásteinsvellinum í dag. Eins og flestum er kunnugt um höfðu Eyjamenn ekki tapað leik í fyrstu sex leikjum liðsins í deildinni og því hefðu flestir tippað á nokkuð öruggan sigur gegn KA, sem var í sjötta sæti deildarinnar fyrir leikinn. En annað kom […]

Leikir helgarinnar í 1. deild

Í fyrstu deildinni er sjöunda umferðin með fimm leikjum í dag og einum á morgun. 1.deild karla: Í dag 14. júní 14:00 Leiknir R. – Víkingur R. (Leiknisvöllur) 14:00 KS/Leiftur – Haukar (Ólafsfjarðarvöllur) 14:00 Stjarnan – Víkingur Ó. (Stjörnuvöllur) 14:00 ÍBV – KA (Hásteinsvöllur) 14:00 Þór – Fjarðabyggð (Akureyrarvöllur) Sunnudagur 15. júní Kl. 20:00 Njarðvík […]

Sýningin Árborg 2008

Dagana 14. og 15. júní verður mannlífs – og fyrirtækjasýning haldin í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi. Sýningin tekur á öllum þáttum atvinnulífs og menningar í Sveitarfélaginu Árborg og á öllu Suðurlandi. Síðastliðið sumar komu 15.000 – 20.000 manns á sýninguna Árborg 2007″. Aðgangur á sýninguna er ókeypis. “ (meira…)

Með bruggverksmiðju í hesthúsi

Lögreglan á Selfossi lagði í gærkvöld hald á 300 lítra af gambra og um 70 lítra af fullunnum landa í hesthúsi í Árborg. Einn karlmaður handtekinn en lögregla telur að efnið hafi verið ætlað til sölu og dreifingar. Manninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu en lögregla lagði hald á efnið, bruggtækin og önnur efni til […]

Taka á móti KA klukkan 14 í dag

Karlalið ÍBV tekur á móti KA á Hásteinsvelli í dag í 7. umferð 1. deildar karla. Eyjamenn unnu góðan útisigur í síðustu umferð gegn Víkingi R. og eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga og markatalan er ekki amaleg, 11 mörk skoruð og aðeins eitt fengið á sig. KA hefur gengið misjafnlega, liðið hefur […]

Pæjumótinu lýkur í dag

Í dag fara fram úrslitaleikir í Pæjumóti TM og ÍBV en mótið hefur staðið yfir síðan á fimmtudagsmorgun. Pæjumótið í ár er stærra en undanfarin ár og óhætt að segja að veðurguðirnir hafi leikið við mótsgesti enda hefur ekki fallið dropi úr himni og vindur hefur verið í sögulegu lágmarki. Úrslitaleikur B-liða verður á Hásteinsvelli […]

Fengu ágætis veður í upphafi ferðar

Um fimmleytið í morgun lagði sex manna hópur Eyjamanna af stað hringinn í kringum landið á tveimur tuðrum en auk þess munu tveir í viðbót fylgja hópnum landleiðina á bíl en verkefnið heitir Kraftur í kringum Ísland og er til styrktar félaginu Krafti. Hringfararnir fengu ágætis veður í upphafi ferðar, smá gjóla og einhver sjór […]

Framkvæmdir við Landeyjahöfn hefjast á næstu vikum

Öll tilboð í hafnar- og vegagerð við Landeyjahöfn voru töluvert undir kostnaðaráætlun. Framkvæmdir hefjast á næstu vikum en áætlað er að höfnin verði tilbúin eftir tvö ár. Gerð Landeyjahafnar markar nokkur tímamót enda verður það eina ferjuhöfnin frá Þorlákshöfn að Höfn í Hornafirði. Framkvæmdir við gerð hafnarinnar hefjast innan skamms en áætlað er að fyrsta […]

Hvalreki við Markarfljótsós

Hvalreki við Markarfljótsós, austan við Bakkafjörur, uppgötvaðis um hálf fimm leytið í dag. Lögreglan á Hvolsvelli er á leið á staðinn. Hræið er um 8 metrar, frekar heillegt og nýlega rekið því ekki er komin ólykt af hræinu. (meira…)

Búið að meta 60 hús á Suðurlandi

Viðlagatrygging Íslands hefur nú metið skemmdir á um 60 húsum á Suðurlandi eftir jarðskjálftana 29.maí, þar með talin flest þau hús sem virðast hafa farið verst út úr hamförunum. Formaður stjórnar Viðlagatryggingar, Torfi Áskelsson, segir að þó sé ekki enn hægt að segja til um hversu mörg þessara 60 húsa verði metin ónýt. Það gerist […]

Hægt að kynnast Sumarstúlkunum á Eyjafréttum

Eins og áður hefur komið fram verður Sumarstúlkukeppnin haldin með pompi og prakt í Höllinni laugardaginn 21. júní. Fimmtán glæsimeyjar taka þátt í keppninni í ár og ljóst að það verður ekki öfundsvert hlutskipti þeirra sem sitja í dómnefndinni enda stúlkurnar hver annarri glæsilegri. Nú er hægt að sjá myndir og viðtöl við stelpurnar hér […]

Margrét Katrín Erlingsdóttir, kjörinn forseti bæjarstjórnar

Á bæjarstjórnarfundi í Sveitarfélaginu Árborg í fyrradag var Margrét Katrín Erlingsdóttir (B lista) kjörin forseti bæjarstjórnar. Margrét mun gegna því embætti næstu tvo mánuði í leyfi Þorvaldar Guðmundssonar oddvita B lista. Þess má geta að Ingunn Guðmundsdóttir var síðust kvenna til að vera kjörin forseti bæjarstjórnar á undan Margréti og það var 14. júní 2000 […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.