Mikil áta í kringum landið

Hafrannsóknastofnun segir, að í nýafstöðnum vorleiðangri rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar hafi komið í ljós, að mikil áta var víðast hvar í kringum landið, einkum úti fyrir Suðurströndinni. Þá voru hiti og selta yfir langtímameðaltali sunnan og vestan við land og undir eða nærri því fyrir norðan. (meira…)
Leggja af stað í fyrramálið

Í fyrramálið eða klukkan 5.00 á laugardagsmorgun hefst hringferð nokkurra Eyjamanna en áætlað er að sigla hringinn í kringum landið á tuðrum. Ferðin er styrktarverkefni fyrir Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra en áætlað er að hringferðinni verði lokið á goslokahátíðinni 4. júlí. (meira…)
�?gir í fullu fjöri á fertugsafmælinu
Varðskipið Ægir er 40 ára um þessar mundir. Skipið var smíðað í Álaborg í Danmörku árið 1968 og breytt í Póllandi árin 1997, 2001 og 2005. Ægir átti stóran þátt í 50 og 200 mílna þorskastríðunum og var Ægir meðal annars fyrst íslenskra varðskipa til að beita togvíraklippum á landhelgisbrjót. Það var þann 5. september […]
Byggðapólitík?
Hin pólitíska afstaða breyttist hratt. Í október 2007 skoruðu starfsmenn Litla-Hrauns á stjórnvöld og fangelsismálayfirvöld að falla frá áformum um stórfellda uppbyggingu á Hólmsheiði. Þess í stað yrði byggt fangelsi fyrir gæsluvarðhaldsfanga í Reykjavík en fangaklefum fjölgað um 40 á Litla-Hrauni. Bæjarráð Árborgar lýsti þegar yfir stuðningi við yfirlýsinguna. (meira…)
Árangursríkari stefna að falla frá Hólmsheiði
Á Alþingi 5. mars sl. sagði ráðherrann m.a. að hugmyndir hans hefðu frá árinu 2003 þróast á þann veg að hann teldi æskilegast að huga að því að tengja saman gæsluvarðhalds- og skammvistunarfangelsi og nýja lögreglustöð á [höfuðborgarsvæðinu]. Jafnframt yrði ráðist í meiri uppbyggingu á Litla-Hrauni en ráðgert hefur verið. Þessi stefna væri mun líklegri […]
Áform um fangelsi á Hólmsheiði lögð á hilluna
ÞÓTT ekki hafi verið tekin um það formleg ákvörðun virðist blasa við að ríkisvaldið hefur lagt áform um að reisa fangelsi á Hólmsheiði á hilluna. Fangelsið á Hólmsheiði átti að rúma 64 fanga en í stað þess er nú stefnt að því að reisa fangelsi á höfuðborgarsvæðinu með um 30 fangaklefum sem yrði sambyggt nýjum […]
Fyrirtækjasýningin Árborg 2008
Mannlífs- og fyrirtækjasýningin Árborg 2008 verður haldin í Íþróttahúsi Sólvallaskóla helgina 14. til 15. júní. Fyrirtæki í Árborg og nágrenni kynna starfsemi sína. (meira…)
Flestir þingmenn komnir með aðstoðarmenn
Bjarni Harðarson, alþingismaður, hefur ráðið sér Ármann Inga Sigurðsson á Selfossi sem aðstoðarmann. Þá eru allir þingmenn Suðurkjördæmis komnir með aðstoðarmenn nema Guðni Ágústsson, Árni Johnsen og Kjartan Ólafsson. (meira…)
Aðalsafnaðarfundur �?orláks- og Hjallasóknar í kvöld kl. 20:00
Aðalsafnaðarfundur Þorláks- og Hjallasóknar verður í kvöld 12. júní kl. 20:00 og hefst með helgistund. Upphaflega átti þessi fundur að vera 29. maí en var sjálffrestað vegna þess að þann sama dag reið yfir Suðurlandsskjálfti upp á 6,1 -6,7 á Richterkvarða. Enginn leið þó líkamlega kvöl í sóknunum en hina andlegu pínu getur enginn mælt. […]
Bjart yfir humarstofninum
Humarstofninn hér við land er í mjög góðu ástandi um þessar mundir. Nýjasta mæling Hafrannsóknastofnunar, sem gerð var í síðasta mánuði, var sú besta frá því að byrjað var að mæla stofninn með núverandi hætti árið 1985, að því er fram kemur í Fiskifréttum í dag. (meira…)
Fjögur tilboð bárust og öll undir kostnaðaráætlun

Fyrir hádegi voru opnuð tilboð í gerð Landeyjahafnar og vegalagningu að höfninni. Fjögur tilboð bárust og voru öll undir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 3,1 milljarða. Suðurverk var með lægsta tilboðið, 1,87 milljarða, Klæðning bauð 2,9 milljarða, Ístak var með frávikstilboð upp á 2,29 milljarða en aðaltilboðið var 2,49 milljarðar. (meira…)
Hús á skjálftasvæðinu vöktuð
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi segir að í kjölfar jarðskjálftanna á Suðurlandi hafi lögreglan fylgst náið með húsum á svæðinu. ,,Við höfum fylgst með húsum þar sem við vitum að einhverjir gætu reynt að nýta sér aðstæður og við viljum reyna að koma í veg fyrir það. Við fylgjumst alltaf vel með en ennfrekar […]
Tilboð í Landeyjahöfn opnuð í dag

Tilboð í gerð Landeyjahafnar og veg að henni verða opnuð klukkan 11.00 í dag, fimmtudag. Margir hafa sótt gögn en framkvæmdir eiga að hefjast í sumar og á að vera lokið sumarið 2010. Upphaflega kostnaðaráætlunin hljóðaði upp á tæpa fjóra milljarða en Sigurður Jóhannsson, deildarstjóri framkvæmda hjá Vegagerðinni, sagði að endanleg kostnaðaráætlun yrði birt um […]
Skyr.is til Englands
Mjólkursamsalan er að hefja sölu á skyri á Bretlandsmarkaði. Tilraunasendingar hafa farið í nokkrar heilsubúðir í London og nágrenni og stefnt er að því að Skyr.is verði til sölu í mörgum smásöluverslunum í haust. (meira…)
Stálu skiptimynt úr golfskálanum í �?orlákshöfn
Brotist var inn í golfskálann í Þorlákshöfn í nótt og stolið þaðan skiptimynt úr peningakassa. Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um innbrotið klukkan hálf sex í morgun en þegar hún kom á vettvang voru þjófarnir á bak og burt. Er þjófsins eða þjófanna nú leitað. (meira…)
Eyjastúlkur fór á kostum í seinni hálfleik

Kvennalið ÍBV vann í kvöld sannfærandi sigur á Haukum í 1. deild kvenna en liðin áttust við í blíðunni á Hásteinsvelli. Eyjastúlkur voru sterkari aðilinn allan leikinn en áttu í erfiðleikum með að skapa sér alvöru marktækifæri í fyrri hálfleik. Gestirnir komust yfir undir lok fyrri hálfleiks, nokkuð gegn gangi leiksins en leikmenn ÍBV voru […]
Sundhöll Selfoss opnar í fullri virkni á morgun 12. júní
Sundhöll Selfoss opnar í fullri virkni á morgun fimmtudaginn 12. júní. Pottarnir hafa verið opnir síðustu daga sem og innilaugin. Á morgun komast því útilaugin og barnalaugin í gagnið aftur. Þetta eru mikil gleðitíðindi enda er veðurspáin góð fyrir morgundaginn sem og næstu daga. (meira…)
Fróði ll ÁR 38 landar eftir fyrstu veiðiferðina
Nýtt skip Fróði ll ÁR 38 var að koma úr sinni fyrstu veiðiferð í morgun til Þorlákshafnar. Aflinn var 54 kör af humri og um 30 kör af fiski. Fróði ll kemur í stað hins mikla aflaskips frá Stokkseyri Fróði ÁR 33 sem er aflahæsta skipið á yfirstandandi humarvertíð og greint hefur verið frá reglulega […]
�?orskkvótinn verður 130 þús. tonn á næsta fiskveiðiári
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að þorskkvótinn á næsta fiskveiðiári verði 130 þúsund tonn. Það sé í samræmi við samþykktir ríkisstjórnarinnar í fyrra. Þetta kom fram í viðtali við ráðherrann í fréttum Ríkisútvarpsins. Einar sagði jafnframt að hann myndi í lok vikunnar kynna tillögur sínar um kvóta annarra fisktegunda (meira…)
Vilja endurskoða rannsóknaraðferðir við mat á stofnstærð og veiðiþol einstakra tegunda

Stjórn Útvegsbændafélags Vestmannaeyja lagði fram á almennum fundi félagsins samþykkt vegna tillagna Hafró um hámarksafla á næsta fiskveiðiári. Í samþykktinni kemur fram að tillögur Hafró séu félagsmönnum mikil vonbrigði og segja mikið ósamræmi milli tillagnanna og þess góða ástands sem sjómenn og útgerðarmenn hafa upplifað á miðunum í kringum landið. Þá vilja félagsmenn endurskoða rannsóknaraðferðir […]