Sjö milljarða króna Landeyjahöfn
Sjö milljarða króna framkvæmd við Landeyjahöfn í Bakkafjöru hefst í sumar. Áætlað er að Landeyjahöfn ásamt nýrri Vestmannaeyjaferju verði tekin í notkun síðsumars árið 2010. Ferðatími frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur styttist um eina og hálfa klukkustund. Siglingatíminn styttist mun meira. (meira…)
Lélegasti leikurinn okkar í sumar

Heimir Hallgrímsson þjálfari Eyjamanna var sáttur með sigur sinna manna gegn Víkingi í kvöld en var ekki ánægður með spilamensku liðsins. „Ég er ánægður með að fá þrjú stig gegn Víkingi sem var spáð efsta sætinu en þetta var arfaslakur leikur hjá okkur og bara leikurinn í heild sinni,“ sagði Heimir í samtali við Fótbolta.net […]
Sumarferð Stokkseyringafélagsins
Hin árlega sumarferð Stokkseyringafélagsins í Reykjavík verður farin laugardaginn 14. júní n.k. Farið verður frá Stokkseyri til Stokkseyrar. Eldri borgara á Stokkseyri, en þeir hafa aðstöðu í Ásgeirsbúð á Stokkseyri, munu koma með í ferðina. Ferðin hefst á Stokkseyri við Ásgeirsbúð kl:10:00 þar sem heimamenn koma í rútuna og farið til Reykjavíkur og stoppað í […]
Selfoss og Stjarnan, jafntefli 1- 1
Heil umferð fór fram í 1. deild karla í kvöld. Hér að neðan má sjá úrslit og markaskorara úr leikjum kvöldsins. Selfoss 1-1 Stjarnan: 1-0 Viðar Kjartansson 1-1 Ellert Hreinsson (meira…)
Stórsigur gegn Víkingum á útivelli

Eyjamenn unnu í kvöld sjötta sigur sinn í röð í 1. deild karla þegar þeir lögðu Víking að velli á heimavelli þeirra í Reykjavík. Leikurinn fór reyndar ekkert sérstaklega vel af stað fyrir ÍBV því heimamenn komust yfir strax á 4. mínútu en leikmenn ÍBV svöruðu með fjórum mörkum og lokatölur því 1:4. (meira…)
Björgvin nýr samstarfsráðherra
Björgvin Guðni Sigurðsson, viðskiptaráðherra, tekur við af Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra, sem norrænn samstarfsráðherra, að því er kemur fram á vef Norðurlandaráðs. (meira…)
Sundlaugin í Laugaskarði 70 ára
Sundlaugin í Laugaskarði á 70 ára afmæli um þessar mundir.Vatni var hleypt í laugina 6. júní 1938 eftir mikið þrekvirki stórhuga manna sem höfðu unnið að byggingunni í sjálfboðavinnu. Af því tilefni gerum við okkur glaðan dag laugardaginn 14. júní. Gestum verður boðið upp á tertu. Sögu- og ljósmyndasýning verður andyri í tilefni afmælisins.Sýningin verður […]
Vilja fund vegna skjálfta á Suðurlandi
Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson, þingmenn Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hafa farið þessi á leit við fyrsta þingmann kjördæmisins, Árna M. Mathiesen, að hann boði alþingismenn Suðurkjördæmis til fundar vegna nýafstaðinna jarðskjálfta. (meira…)
Pressan er öll á Víkingum

Í kvöld sækja Eyjamenn Víking heim í sjöttu umferð 1. deildar karla en leikurinn hefst klukkan 18.30. ÍBV hefur unnið fyrstu fimm leiki sína og auk þess ekki fengið á sig mark á meðan Víkingar, sem flestir spáðu góðu gengi í sumar, hafa verið í basli og eru í fimmta sæti, með tvo leiki unna, […]
Fimmtán stúlkur taka þátt

Sumarstúlka Vestmannaeyja verður valin laugardagskvöldið 21. júní í Höllinni sem stendur að keppninni ásamt Fréttum. Að þessu sinni taka fimmtán stórglæsilegar stúlkur þátt en keppninni sem nú er nú haldin í 22. skiptið. Að venju verður í boði glæsilegur matseðill sem kemur frá Einsa kalda, veisluþjónustu þar sem Einar Björn ræður ríkjum. Ýmis skemmtiatriði verða […]
Styrkjum úthlutað til jarðhitaleitar
Á fundi orkuráðs á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri sl. laugardag var úthlutað samtals 172 milljónum til jarðhitaleitar á 29 stöðum þar sem ekki nýtur hitaveitu. Miðað við kostnaðaráætlanir umsækjenda verður á næstunni starfað við jarðhitaleit fyrir nær 300 milljónir króna. (meira…)
Brotist inn í þjónustuhús á Hakinu
Brotist var snemma í gærmorgun inn í þjónustuhús þjóðgarðsins á Þingvöllum sem er á Hakinu. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var engu stolið. Öryggisvörður hjá Securitas hélt þegar á staðinn frá Reykholti í Biskupstungum. Á Gjábakkavegi mætti hann bíl, sem lögregla síðan fann mannlausa á Laugarvatni. Málið er í rannsókn. (meira…)
�?ska eftir upplýsingum
Lögreglan á Selfossi fann á sunnudagsmorgun rauða Peugeot-bifreið sem stolið var á Selfossi á föstudagskvöld. Bifreiðin, sem fannst við Félagslund í Flóahreppi, hafði verið töluvert skemmd og höfðu allir hjólbarðar hennar verið sprengdir. Lögreglan biður þá sem geta veitt upplýsingar um hvarf bifreiðarinnar að hafa samband í síma 480-1010 (meira…)
Björgunarfélag Árborgar í vandræðum
Framkvæmdir við nýja Björgunarmiðstöð á Selfossi liggja nú niðri því verktakar hafa ekki fengið greitt fyrir vinnu sína eftir að viðskiptabanki byggingaraðilans hækkaði vextina á lánunum um 100%. Verktakarnir eiga inni um 70 millj. kr. (meira…)
Ýktar fréttir af síldveiðum

Það var svoldið gaman að lesa og horfa á frétt frá síldveiðum inni á Vísi.is í gær. Ég hafði á laugardagsmorgninum hringt um borð í Guðmund VE, eins og ég geri oft á meðan ég drekk morgunkaffið, og fékk þær fréttir að það væri svona jöfn veiði. Sem sagt ekkert mok en ekki heldur neinn […]
Ráðgjöf Hafró um ufsa, síld, karfa og grálúðu dregin í efa

Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ telur ekki ástæðu til að fylgja ráðgjöf um 25.000 tonna samdrátt í veiðum á ufsa og fremur sé ástæða til að auka veiði á síld en draga úr henni. Einnig dregur hann í efa að sá niðurskurður sem boðaður er í tengslum við karfa- og grálúðuveiði sé skynsamlegur í stöðunni […]
Afsláttur til íbúa jarðskjálftasvæðanna
Verslunin Bergkristall, Faxafeni 9 í Reykjavík, gerir íbúum jarðskjálftasvæðanna á Suðurlandi tilboð um 15% afslátt á borðbúnaði, kristaljósakrónum og glervörum fyrir öll tækifæri. Um er að ræða hágæðavörur frá Rússlandi sem verslunin flytur inn. Afsláttarmiði hefur verið sendur í öll hús á svæðinu og gildir þetta tilboð næstu tvo mánuði. Sjá: www.bergkristall.is (meira…)
Humarveiðar 2008
Jón á Hofi ÁR er kominn ansi nálægt Fróða ÁR, og Ársæll ÁR er ekki nema nokkur hundruð kílóum á eftir Þóri SF. Svo virðst vera sem humaraflinn sé að minnka því að prósentutalan lækkaði hjá öllum bátunum nema Þóri SF og Reyni GK. Reynir GK og Erlingur SF eru með hæstu prósentutöluna eða 57% […]
�?flugt umferðareftirlit við Selfoss
Lögreglumenn á Selfossi stöðvuðu um 200 ökumenn á Suðurlandsvegi við Biskupstungnabraut á laugardagsmorgni á milli kl. 07:30 og 11:00. Þetta var gert til að kanna ástand ökumanna og ökutækja. Allir bílstjórarnir voru fengnir til að blása í áfengismæli. Einn stóðst ekki prófið. Hann var tekinn úr umferð og blóðsýni tekið frá honum sem sent verður […]
Hestamenn óttast þriðjungs hækkun á heyi
Hestamenn óttast að hey muni hækka um allt að þriðjung eftir tæplega tuttugu prósenta hækkun síðasta vetur. Þá bendir ýmislegt til að skortur geti orðið á heyi. Þetta gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir hestamennskuna þegar fram í sækir, að sögn kunnugra,því hætt er við að hestamenn fari að fækka við sig eða hætta alveg í […]