Lið frá Norðurlöndum spyrjast fyrir um Atla Heimisson

Atli Heimisson leikmaður ÍBV hefur vakið áhuga liða á Norðurlöndunum með frammistöðu sinni með ÍBV á þessari leiktíð. Atli hefur skorað þrjú mörk í fjórum leikjum í 1.deildinni og eitt mark í einum leik í VISA-bikarnum. Atli hefur verið lykilmaður hjá ÍBV í sumar sem hefur unnið alla fimm leiki sína, hafa skorað 11 mörk […]
Hvað varð um götusóparana?

Það eru margir sem sakna götusóparanna, enda ruslið á gangstéttum og skúmaskotum ekki til fyrirmyndar. Sóparabíllin sést sjaldan á götunum. Það var auglýsing í Fréttum um hreinsun á hafnarsvæði frá hafnarstjóra. Málið er að lítið sem ekkert er gert í málunum þó auglýst sé, það er sama gamla draslið á Eiðinu og víða á hafnarsvæðinu […]
Skipalyftan ehf. opnar nýja heimasíðu

Skipalyftan ehf. opnaði fyrir stuttu nýja heimasíðu fyrirtækisins á veffanginu www.skipalyftan.is. Á síðunni er að finna helstu upplýsingar um fyrirtækið og starfsfólk þess en síðunni er auk þess ætlað að auðvelda aðgang viðskiptavina að þjónustu Skipalyftunnar. Þá er þar að finna fjölda mynda úr starfi fyrirtækisins. (meira…)
Gunnar Heiðar skoraði tvennu í norska bikarnum

Landsliðsmiðherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði tvö mörk fyrir Vålerenga sem bar 4-1 sigurorð af Raufoss í 2. umferð norsku bikarkeppninnar í dag. Gunnar Heiðar skoraði mörkin í upphafi og undir lok leiksins, það fyrra strax á 2. mínútu og það síðara þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma í síðari hálfleik. Hann hefur nú skorað […]
Maí var hlýr og góðviðrasamur
Maí s.l. var hlýr og góðviðrasamur, ólíkt því sem verið hefur á undanförnum árum að því er fram kemur í yfirlit um tíðarfarið í maí frá Veðurstofunni. Meðalhiti í Reykjvík var 8,6 stig og er það 2,3 stigum ofan meðallags. Þetta er hlýjasti maí í Reykjavík frá 1960 að telja og sá þriðji hlýjasti frá […]
Skjálftavirkni stöðug
Eftirskjálftavirknin Í Ölfusi og Flóa hefur verið nokkuð stöðug síðasta sólarhringinn. Enn mælast að meðaltali um 20 skjálftar á klukktima, en flestir mjög smáir. Stærstu skjálftarnir eru um 2,7 að stærð. Virknin síðasta sólarhring hefur að mestu verið á sprungunum þar sem stóru skjálftarnir voru í síðustu viku og á svæðinu við Hjallahverfið og vestur […]
Ágætis þátttaka í kvennahlaupinu í Vestmannaeyjum

Eins og áður hefur komið fram hér á Eyjafréttum var Kvennahlaupinu frestað í Vestmannaeyjum í gær enda aftakaveður, rok og rigning. Ákveðið var að sæta lagi í dag enda veðrið mun betra, nánast logn og þó að nokkrir rigningardropar hafi fallið af himni ofan þá lét sterkarar kynið það ekkert á sig fá og fjölmennti […]
Rokkamma – með sínu lagi
Andrea hefur starfað í útvarpi í aldarfjórðung og er hafsjór af fróðleik um tónlist, erlenda sem íslenska. Hún segir að of margir íslenskir tónlistarmenn noti enska texta. „Ég held að enskan sé ekki það sem kemur fólki á erlendan markað. Auk þess má ekki gleyma að tónlist með íslenskum textum er nær hjarta þjóðarinnar og […]
KFS hafði betur gegn �?gi í aftakaveðri

KFS tók á móti Ægi í 3. deild karla en KFS hefur ekki farið vel af stað í sumar og tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum. Eyjamenn náðu þó að snúa gengi liðsins við í dag og lögðu Ægi 3:2 í leik þar sem veðrið spilaði allt of stór hlutverk. Stöðug rigning var á meðan leiknum […]
Kvennahlaupinu frestað

Í dag fer kvennahlaup ÍSÍ og Sjóvá fram um allt land en hlaupið hefst núna klukkan eitt. Kvennahlaupinu hefur hins vegar verið frestað í Vestmannaeyjum vegna veðurs en klukkan tólf var austsuðaustan 23 metrar á sekúndu og rigning. Kvennahlaupið mun fara fram í Vestmannaeyjum á morgun og hefst á sama tíma eða klukkan 13.00 við […]
Lágmark eigin áhættu lækki niður í 20 þúsund krónur
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær morgun, að tillögu viðskiptaráðherra, að setja bráðabirgðalög um breytingu ákvæða laga um Viðlagatryggingu Íslands þar sem kveðið er á um að lágmark eigin áhættu lækki niður í 20 þúsund krónur. Þetta var áður 85 þúsund krónur. (meira…)
117 nemendur brautskráðir
NÝLEGA voru 117 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, þar af voru 50 stúdentar. Nú voru í fyrsta sinn brautskráðir sjúkraliðar af Sjúkraliðabrú og voru þeir 13. Úr meistaraskóla útskrifuðust óvenju margir eða 11. 7 nemendur brautskráðust af tveimur brautum. (meira…)
Fyrsti bæjarstjórnarfundur sameinaðs sveitarfélags
Eftirfarandi er upphaf fundargerðar fyrsta bæjarstjórnarfundar. ENDURRIT ÚR FUNDARGERÐABÓKBÆJARSTJÓRNAR ÁRBORGAR.**************************1. fundurbæjarstjórnar Árborgar haldinn í Ársölum sunnudaginn 7. júní 1998 kl. 17:00. Bæjarstjórnina skipa: (meira…)
Selfoss vann Hauka
Heil umferð fór fram í 1. deild karla í kvöld. Eyjamenn unnu góðan sigur á Fjarðarbyggð og hefur liðið ekki enn fengið á sig mark í sumar. Leiknir og Víkingúr Ólafsvík gerðu markalaust jafntefli í bragðdaufum leik. Selfyssingar unnu Hauka með tveimur mörkum frá Sævari Þór Gíslasyni undir lok leiksins. KS/Leiftur og Víkíngur Reykjavík gerðu […]
Léttur skjálfi í Hveragerði
Fyrir örfáum mínútum fannst fyrir jarðskjálfta í Hveragerði. Heimamenn sem DV ræddi við telja að hann sé á bilinu 3 til 4 á Richter. Þórunn J. Sigurðardóttir er íbúi við Kambahraun ásamt fjölskyldu. ,,Það heyrðist glamur úr skápum og gler titraði. Manni er hætt að bregða við svona lagað. Við erum búin að ganga þannig […]
Aldrei spurning gegn Fjarðarbyggð

Eyjamenn halda áfram sigurgöngu sinni í sumar en í kvöld tóku strákarnir á móti Fjarðarbyggð á Hásteinsvellinum. ÍBV hafði til þessa unnið fyrstu fjóra leikina með sömu markatölunni, 2:0 en þó voru heimamenn hæfilega bjartsýnir fyrir leikinn enda Fjarðarbyggð í þriðja sæti deildarinnar og höfðu ekki tapað leik. Auk þess vantaði eina fimm leikmenn í […]
Hugað að velferð íbúanna
Ólafur Örn Haraldsson, verkefnisstjóri á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir að þjónustumiðstöðvarnar á jarðskjálftasvæðinu á Suðurlandi verði opnar lengur til að aðstoða íbúana. Frá laugardegi fram á fimmtudag höfðu 340 manns komið með skráðar óskir á þjónustumiðstöðvarnar. (meira…)
Kvennahlaup ÍSÍ
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á morgun laugardaginn 7. júní. Þetta verður í nítjánda sinn sem fjölmennasti íþróttaviðburður landsins er haldinn. Árlega taka um 15000 – 17000 þúsund konur þátt og á síðasta ári var hlaupið frá 100 stöðum hérlendis og 22 stöðum erlendis. (meira…)
Nýr hringitónn

Í dag er föstudagur og eins og venja er, þá býður vefurinn upp á létt föstudagsgrín. Hér að neðan má sjá myndband þar sem nýr hringitónn veldur misskilningi í þröngri lyftu…eða hvað? (meira…)
Sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey til Eyja?

Á vefnum Veidimenn.is er fullyrt að breski sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey hafi áhuga á að gera þátt um matreiðslu á íslenska lundanum. Eftir því sem næst verður komist stendur til að kokkurinn komi við í Vestmannaeyjum enda stærsta lundabyggðin á Íslandi að finna þar. Ramsey er þekktastur fyrir þættina Hell’s Kitchen en lundaþátturinn yrði hluti af […]