Gunnar Heiðar vill koma sínum málum á hreint

Eins og áður hefur komið fram skoraði Gunnar Heiðar Þorvaldsson eitt marka Vålerenga í 3-0 sigri liðsins á Ham-Kam í fyrsta leik tíundu umferðar norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Svo gæti farið að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir félagið vegna þess að hlé verður gert á deildinni þegar tíundu umferðinni lýkur, til 27. júní, […]

Taka á móti Fjarðarbyggð í kvöld

Karlalið ÍBV tekur á móti Fjarðarbyggð á Hásteinsvellinum í kvöld í 5. umferð 1. deildar Íslandsmótsins. Leikur liðanna hefst klukkan 19.00 en Eyjamenn eru sem fyrr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga og markatöluna 8:0 eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Fjarðarbyggð er í þriðja sæti, hefur unnið tvo leiki og gert tvö jafntefli og má […]

Skorað á Eyjapæjur að taka þátt í kvennahlaupinu

Á morgun, laugardag 7. júní verður kvennahlaupið haldið um allt land. Kvennahlaup hefur verið haldið í Vestmannaeyjum undanfarin ár og verður engin undantekning á því í ár. Hlaupið verður frá íþróttamiðstöðinni klukkan 13 og verður boðið upp á þrjár vegalengdir, 2, 3.5 og 7 km. Hlutfallsleg þátttaka kvenna í Vestmannaeyjum hefur ekki náð sömu hæðum […]

Leiðtoganámskeið, flott framtak

Viska, fræðslu og símenntunarstöð bauð öllum konum í Vestmannaeyjum á leiðtoganámskeið sem stendur þessa viku. Námskeiðið er fjögur kvöld og byggist upp á fyrirlestrum tvö kvöld, hópastarfi þriðja kvöldið og sameiginlegum kvöldverði í kvöld, föstudag. Ásdís Halla Bragadóttir var með fyrsta námskeiðið á þriðjudagskvöld í Alþýðuhúsinu undir yfirskriftinni „Listin að vera leiðtogi. “ (meira…)

Vaktin í sumarfrí

Fréttablaðið Vaktin kemur ekki út í júnímánuði vegna sumarfría. Næsta tölublað Vaktarinnar verður hins vegar á sínum stað föstudaginn 4. júlí. (meira…)

Kvótinn

Það er frekar hart í ári hjá leiguliðum þessa dagana og ég var að fá þær fréttir af suðurnesjunum, að þar stefni í fjölda gjaldþrot margra minni útgerðarmanna og m.a. hringdi í mig maður í dag, sem hefur verið að beita á suðurnesjunum, til að reyna að selja mér nokkur línubjóð, sem var það eina […]

Gunnar Heiðar skoraði glæsilegt mark

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði í kvöld eitt marka Vålerenga þegar liðið lagði botnlið Ham Kam í norsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli Vålerenga. Lokatölur urðu 3:0 en Gunnar Heiðar skoraði annað mark liðsins. Vålerenga er komið með 14 stig eftir tíu leiki og er í sjötta sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Hægt […]

Langþráð lög um innheimtur

Á ÞINGLOKADEGI vorsins var samþykkt frumvarp til innheimtulaga, sem og frumvarp um neytendalán og frumvarp til breytinga á samkeppnislögum. Með þeim urðu alls 17 frumvörp frá viðskiptaráðuneytinu að lögum í vetur og er það harla góður árangur enda starfsfólk ráðuneytisins unnið myrkranna á milli þetta fyrsta ár nýrrar ríkisstjórnar. (meira…)

Íbúafundur fyrir íbúa af erlendum uppruna

Boðað er til íbúafundar föstudaginn 6. júní n.k. kl. 18 fyrir íbúa jarðskjálftasvæðanna á Suðurlandi sem eru af erlendum uppruna. Fundurinnverður haldinn í Vallaskóla, Sólvöllum, á Selfossi, í austurrými. Á fundinum munu verða túlkar sem túlka á pólsku, ensku og litháísku. Atvinnurekendur eru hvattir til að láta boð um fundinn berast á meðal starfsmanna sem […]

Síðasta sýningarhelgi Jóns Inga á Eyrarbakka

Málverkasýning Jóns Inga Sigurmundssonar stendur nú yfir í Gallerí Gónhól (gamla hraðfrystihúsinu) á Eyrarbakka. Sýningin var liður í hátíðinni Vor í Árborg, sem hófst 8. maí. 58 myndir eru á sýnunginni og hefur aðsókn verið mjög góð og er um helmingurinn mynda seldur Á sýningunni eru olíu- og vatnslitamyndir. Sýningunni lýkur sunnudaginn 8. júní. (meira…)

Framkvæmdum lýkur í sumar

Framkvæmdir við Barnaskóla Vest­mannaeyja sem hófust sumarið 2007 eru nú langt komnar og farið að sjá fyrir endann á verkinu. Framkvæmdirnar voru mun yfirgripsmeiri en menn ætluðu í fyrstu en það stafaði fyrst og fremst af slæmu ástandi skólans sem undir­strikar mikilvægi þessara fram­kvæmda. Fyrir vikið tókst ekki að ljúka framkvæmdum á tilsettum tíma en […]

Breyttur útfarartími

Runólfur Dagbjartsson (Dúddi Múr), sem andaðist 19. maí síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 6. júní klukkan 13.00 en ekki klukkan 15.00 eins og áður hafði verið auglýst. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn í Vestmannaeyjum (meira…)

Hallgrímur í 2. sæti í Hafnarfirði

Einn Vestmannaeyingur tók þátt í fyrsta stigamóti unglinga í golfi á þessu ári, Kaupþingsmótaröðinni, en það mót var haldið á Hval­eyrarvellinum í Hafnarfirði á laug­ardag. Það var Hallgrímur Júlíusson yngri, sem varð einmitt Íslands­meistari í sínum flokki í fyrra. Hallgrímur, sem keppir í flokki 13-14 ára stráka, varð í 2. sæti í þessu móti, á […]

Arnsteinn Ingi ráðinn tímabundið sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvar

Arnsteinn Ingi Jóhannsson hefur verið ráðinn í afleysingastöðu forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar. Jón Pétursson, framkvæmdar­stjóri fjöl­skyldu- og fræðslusviðs Vest­mannaeyjabæjar, sagði að fimm hefðu sótt um stöðuna en um tímabundna ráðningu væri að ræða vegna veikindaleyfis for­stöðu­­manns. (meira…)

Yngvi rifbeinsbrotinn og frá í nokkrar vikur

Yngvi Borgþórsson fékk þungt högg á síðuna á upphafsmínútunni í bikarleiknum í gær gegn ÍR. Hann lék þó næstu 20 mínútur og hefði sennilega klárað leikinn en var gegn vilja sínum tekin útaf. Yngvi var lagður inn á sjúkrahúsið strax að leik loknum og kom í ljós að hann var illa rifbeinsbrotinn. Yngvi þarf að […]

Klemmdist illa og missti framan af tveimur fingrum

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF sótti slasaðan sjómann um borð í Drangavík VE 80 í gær­kvöldi og flutti á Borgarspítala Háskólasjúkrahús í Reykjavík. Birgir Stefánsson, stýrimaður á Drangavík, sagði skipverjann hafa klemmst illa á keðju og tók fram­an af tveimur fingrum vinstri ­handar, vísifingri og löngutöng. (meira…)

Nemendur á suðvesturhorni stóðu sig best

Grunnskólanemendur í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi stóðu sig best í samræmdu prófunum, sem lögð voru fyrir nemendur í 10. bekk í vor. Nemendur í Suðurkjördæmi stóðu sig hins vegar verst, samkvæmt fyrstu niðurstöðum. (meira…)

Menn eiga að vera viðbúnir stórum skjálfta

Suðurlandsskjálftahrinunni er ekki lokið og menn eiga að vera viðbúnir jafnstórum eða stærri skjálfta og varð í síðustu viku, nær Reykjavík, segir Páll Einarsson prófessor. Hrikalegar jarðsprungur, allt upp í þriggja metra breiðar, hafa komið í ljós ofan Hveragerðis. (meira…)

Hafró mælir með minni kvóta

Hafrannsóknarstofnun hefur lagt fram tillögur sínar að kvóta fyrir næsta fiskveiðiár. Stofnunin leggur til að þorskkvótinn verði 124 þúsund tonn en árið þar á undan var hann 130 þúsund tonn. Ýsukvótinn yrði 83 þúsund tonn verði farið að ráðleggingum stofnunarinnar hann var 100 þúsund tonn. (meira…)

�?tibú Fiskistofu í Grindavík tekur til starfa

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson opnaði nýtt útibú Fiskistofu í Grindavík í vikunni. Útibúið í Grindavík er sjötta útibú Fiskistofu. Hin eru á Ísafirði og Akureyri sem hafa verið starfrækt meira en áratug og útibúin í Stykkishólmi, á Höfn og í Vestmannaeyjum sem öll eru tilkomin á síðustu þremur árum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.