Fjölmennur íbúafundur í �?lfussi

Fjölmenni var á íbúafundi í Ölfussi í gærkvöld. Á fundinum var rætt um jarðskjálftanna á fimmtudaginn var og afleiðingar þeirra. Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri Ölfuss, segir að milli 80 og 100 manns hafi verið á fundinum þar sem farið var yfir viðbrögð almannaverndar við skjálftanum og sú þjónusta sem sveitarfélagið býður upp á kynnt. (meira…)

Sýnir enga iðrun

Þórður Jónsteinsson, sem olli slysinu þar sem hin 5 ára Svandís Þula Ásgeirsdóttir lét lífið, bróðir hennar Nóni Sær lamaðist og Ásgeir Jón Einarsson, sem var með Þórði í bíl, lét einnig lífið, segist í samtali við DV ekki hafa ástæðu til að iðrast. Þórður hefur verið tekinn níu sinnum fyrir umferðarlagabrot eftir slysið. Fyrir […]

Sigur eftir framlengingu

Lið ÍBV verður í pottinum þegar dregið verður í 32 liða úrslit Visabikarkeppninnar en í kvöld lögðu Eyjamenn ÍR að velli. Það var þó ekki nema rétt svo að ÍBV hafði því því eftir framlengdan leik varð niðurstaðan 3:2 sigur ÍBV en ÍR-ingar voru lengi vel yfir í síðari hálfleik 1:2. Það var Atli Heimisson […]

Lang erfiðasti andstæðingurinn sem hægt var að fá

Eins og áður hefur komið fram tekur ÍBV á móti 2. deildarliði ÍR í 64 liða úrslitum Visa bikarsins í kvöld en við stjórnvölinn hjá ÍR er fyrrum þjálfari ÍBV, Guðlaugur Baldursson. Guðlaugur stýrði ÍBV liðinu í rúmlega eitt og hálft tímabil en Heimir Hallgrímsson, núverandi þjálfari ÍBV tók við af honum á miðju tímabili […]

Heimir á von á erfiðum leik

VISA bikarkeppnin er með breyttu sniði í ár og ÍBV hefur leik í keppninni í kvöld þegar ÍR-ingar koma í heimsókn á Hásteinsvöll. Leikurinn hefst kl 20:00. ÍR er sem stendur í efsta sæti 2.deildar. Hvað segir Heimir Hallgrímsson um leikinn? „Mér finnst þetta nýja fyrirkomulag í VISA bikarnum vera mun skemmtilegra. Leikurinn í dag […]

Innbrot í sundlaugina á Stokkseyri

Í síðustu viku var gerð tilraun til innbrots í sundlaugina á Stokkseyri. Aðfaranótt mánudags var brotist inn í sundlaugina og skiptimynt stolið um það bil sexþúsund krónum. (meira…)

Landeigendur stefna ríkinu og Landsvirkjun

„Ef þetta mál vinnst þá held ég að þessar virkjanir séu fyrir bí,“ segir Atli Gíslason, þingmaður og lögmaður landeiganda við neðri hluta Þjórsár, sem hefur stefnt fjármálaráherra fyrir hönd ríkisins og forstjóra Landsvirkjunar fyrir hönd fyrirtækisins vegna áforma þess um að reisa þrjár virkjanir í Þjórsá. Málið hefur fengið flýtimeðferð og verður þingfest í […]

Farþegar um Keflavíkurflugvöll í maí

Í nýliðnum maímánuði fóru 173 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll sem er tæplega 4,5% fækkun á milli ára. Þetta kemur fram í tölum frá flugvellinum. Þess ber að geta að stærsta hluta fækkunarinnar, eða 5.800 af rúmlega 8.000 farþegum, má rekja til færri skiptifarþega. Það sem af er árinu, eða til loka maí, hafa rúmlega 689 […]

Fólk varað við að vera við hlíðar Ingólfsfjalls

Almannavarnir vara fólk við að vera við hlíðar Ingólfsfjalls og nálægra fjalla. Fjölmargir smáskjálftar hafa mælst eftir að skjálfti upp á 4,3 til 4,5 mældist í Hjallahverfi undir suðurhlíðum Hellisheiðar um klukkan hálf sjö í gærkvöldi. Annar upp á 3,3 mældist skömmu síðar, en hinir hafa allir verið mun vægari. Skjálftinn í gærkvöldi, sem átti […]

Kveðja frá Karli V. Matthíassyni til sjómanna

Á hverju ári höldum við sjómannadaginn hátíðlegan, þennan dag , sem á fastan sess í huga þjóðarinnar og svo mikinn, að hann hefur oft á tíðum sama yfirbragð og þjóðhátíðardagur okkar 17, júní, ekki síst á þeim stöðum sem hafa nær algerlega byggt afkomu sína á fiskveiðum og sjósókn. Íslendingar þakka þennan dag sjómönnum sínum […]

Fangi á Litla-Hrauni útskrifast úr Fjölbrautaskóla Suðurlands

Föstudaginn 23. maí síðastliðinn brautskráði Fjölbrautaskóli Suðurlands 117 nemendur, þar af 50 stúdenta. Meðal nýstúdenta var Þór Sigurðsson, fangi á Litla-Hrauni, sem útskrifaðist af félagsfræðibraut. Þór flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. (meira…)

Dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Hann var ákærður fyrir að hafa í október í fyrra slegið annan mann í hnakkann með steini og stungið hann með brotnum flöskustúti. Árásin átti sér stað í Vestmannaeyjum. (meira…)

Skemmdir unnar á sorpbíl og Sorpeyðingarstöðinni

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið enda töluvert um að vera í bænum. Sjómannadagshelgin fór vel fram og án mikilla vandræða. Þó þurfti að aðstoða nokkra til síns heima sökum ölvunar. Að morgni sl. sunnudags var lögreglu tilkynnt um að brotnar hafi verið fjórar rúður í Sorpeyðingarstöðinni sem og allar rúður […]

Aðstoðuðu fólk við að flytja þunga húsmuni

Um það bil þrjátíu björgunarsveitarmenn voru í allan gærdag að aðstoða fólk á jarðskjálftasvæðinu við að koma þungum húsmunum á sinn stað og sitthvað fleira. Þá girtu þeir af 23 hús á svæðinu, sem lýsta hafa verið óíbúðarhæf. Ekki liggur fyrir hvort þau verða rifin eða hvort gert verður við þau. (meira…)

Skortur á skyri vegna skjálftanna

Búast má við vöruskorti fram eftir vikunni vegna skemmda á búnaði í starfsstöð MS á Selfossi í jarðskjálftunum á fimmtudag. Starfsemin á Selfossi verður rekin með takmörkuðum afköstum fram eftir vikunni eða þar til viðgerðir hafa farið fram. Einkum eru það skyrtegundir sem má búast við skorti á. (meira…)

�?ðruleysi og yfirvegun

Bæjarstjórn Hveragerðis vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra björgunar- og viðbragðsaðila sem aðstoðað hafa bæjarbúa í þeim atburðum sem dunið hafa yfir að undanförnu. Þetta kemur fram í bókun bæjarstjórnar. Jafnframt vill bæjarstjórnin þakka starfsmönnum bæjarins og öllum bæjarbúum það æðruleysi og yfirvegun sem fólk hefur sýnt vegna skjálftanna og afleiðinga þeirra (meira…)

KFS komst áfram í bikarkeppninni

KFS sigraði Ými í forkeppni Visa-bikars karla í kvöld en liðin mættust á Týsvellinum. Trausti Hjaltason kom sínum mönnum yfir strax á 6. mínútu og Stefán Björn Hauksson bætti við öðru marki á 34. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki. Stefán Björn fékk svo að líta rauða spjaldið fyrir litlar sakir í upphafi síðari hálfleiks […]

23 húsum lokað á skjálftasvæði

Um 30 björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa í dag verið við störf á jarðskjálftasvæðinu á Suðurlandi. Helstu verkefni hafa m.a. verið að girða af hús sem búið er að lýsa óíbúðarhæf, en þau eru fimm talsins á Selfossi, tvö á Eyrarbakka og búið er að loka 16 húsum í Ölfusi. Einnig hafa björgunarsveitarmenn verið að dreifa […]

Heiðurstónleikar Eagles í Laugardalshöllinni þann 17. október

Þann 17 okt næstkomandi verða haldnir heiðurstónleikar hljómsveitarinnar Eagles í Laugardalshöllinni. Eagles hefur um áratugaskeið verið ein af vinsælustu hljómsveitum heimsins, þrátt fyrir að hafa ekki gefið út plötu í áraraðir en sveitin lifir enn á smellum eins og Hotel California, Tequila Sunrise, Take it easy, Desperado og marga fleiri slagara. Eagles sendi svo frá […]

Bæjarstjórn Árborgar boðar til íbúafundar vegna jarðskjálftanna síðustu daga

Bæjarstjórn Árborgar boðar til íbúafundar vegna jarðskjálftanna síðustu daga. Á fundinn mæta fulltrúar frá sveitarfélaginu, almannavörnum, lögreglu, björgunarsveitum, Rauða krossinum, Heilbrigðisstofnun og Viðlagatryggingu Íslands.Farið verður yfir stöðu mála og það sem framundan er. Fundurinn verður haldinn í Sunnulækjarskóla á Selfossi, sunnudaginn 1. júní og hefst hann kl. 17.00. Bæjarstjórinn í Árborg (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.